Glæsilegur floti nýrra skipa í Grindavíkurhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Á þessari mynd Jóns Steinars frá því í gær má sjá þrjú af nýjustu skipum flotans við bryggju í Grindavík. Fremstur er línuveiðarinn Páll Jónsson GK sem smíðaður var fyrir Vísi í Póllandi og aftan við hann systurskipin Vörður ÞH 44 og Áskell ÞH 48. … Halda áfram að lesa Glæsilegur floti
Litli Hamar SH 222
1773. Litli Hamar SH 222 ex Erna RE 47. Ljósmynd Alfons Finnsson. Á þessum myndum Alfons Finnssonar sjáum við Litla Hamar SH 222 sem upphaflega hét Erna RE 47 og var smíðuð á Akranes árið 1987. Erna RE 47 var smíðuð hjá Bátasmiðjunni Knörr fyrir Hrein Hreinsson í Reykjavík en 1998 fær hann nafnið Litli … Halda áfram að lesa Litli Hamar SH 222
Kap II á Breiðafirði
1062. Kap II VE 7 ex Kap II VE 444. Ljósmynd Alfons Finnsson 2020. Á þessum myndum Fonsa vinar míns má sjá Kap II VE 7 frá Vestmannaeyjum draga netin á Breiðafirði í dag. Kap II VE 7 var smíðuð í Stálvík árið 1967 og hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177. Lesa má nánar um … Halda áfram að lesa Kap II á Breiðafirði
Siglunes ÞH 60
1100. Siglunes ÞH 60 ex Siglunes HU 222. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Siglunes ÞH 60 kemur hér að landi á Húsavík um árið en það var keypt til Húsavíkur haustið 1987. Dagur sagði svo frá 11. nóvember um komu bátsins til Húsavíkur: Siglunes ÞH 60, 101 tonna stálskip kom til heimahafnar á Húsavík á föstudagsmorguninn. Skipið … Halda áfram að lesa Siglunes ÞH 60
Jón Finnsson RE 506
1742. Jón Finnsson RE 506. Ljósmynd Sigfús Jónsson. Jón Finnsson RE 506 sem hér sést var smíðaður smíðaður í Shiprepair Yard Gryfia í Stettin í Póllandi árið 1987 fyrir Gísla Jóhannesson útgerðarmann. Kom hann í stað eldra skips með sama nafni sem selt var til Chile árið 1985. 1995 keypti Ljósavík hf. í Þorlákshöfn skipið … Halda áfram að lesa Jón Finnsson RE 506
Áskell ÞH 48 landaði á Eskifirði í dag
2958. Áskell ÞH 44 á Eskifirði í dag. Ljósmynd Sigurður Davíðsson. Sigurður Davíðsson sendi þessar myndir sem hann tók á Eskifirði í dag og sýna Áskel ÞH 48 koma inn til löndunar. Það er svo sem ekki mikið um þetta að segja, Áskell var búinn að landa áður í Grindavík eftir prufutúr og nú hafa … Halda áfram að lesa Áskell ÞH 48 landaði á Eskifirði í dag
Kristín GK 457
972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línuskip Vísis hf., Kristín GK 457, kom til hafnar í Grindavík í gær og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Upphaflega Þorsteinn RE 303, smíðaður í Boizenburg í A-Þýskalandi árið 1965. 972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Jón Steinar 2020. … Halda áfram að lesa Kristín GK 457
Siggi Bjarna GK 5
2454. Siggi Bjarna GK 5 ex Ýmir BA 32. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2020. Siggi Bjarna GK 5 fór í dag í reynslusiglingu eftir að hafa verið í skveringu í Skipasmíðastöð Njarðvíkur þar sem einnig var gert við gírinn í bátnum. Siggi Bjarna GK 5 hét upphaflega Ýmir BA 32 og er einn Kínabátanna sem komu … Halda áfram að lesa Siggi Bjarna GK 5
Jón á Hofi
1645. Jón á Hofi ÁR 42 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessar myndir af Jóni á Hofi ÁR 42 þegar skipin mættust á dögunum fyrir sunnan land. Jón á Hofi ÁR 42 hét áður Þuríður Halldórsdóttir GK 94 en Rammi hf. … Halda áfram að lesa Jón á Hofi
Ný Cleopatra 36 til Nerlandsøy í Noregi
Skårungen M-260-HØ. Ljósmynd Trefjar 2020. Útgerðarfélagið RM Kystfiske AS fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni standa feðgarnir Roy Skår og Roy-Morten Skår. Roy-Morten verður skipstjóri á bátnum, faðir hans Roy hefur verið lengi í útgerð stærri skipa í Noregi Nýi báturinn heitir Skårungen og er … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Nerlandsøy í Noregi









