Skálaberg ÞH 244

Skálaberg ÞH 244 ex Sigurður Þorkelsson ÍS 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skálaberg ÞH 244 kemur hér að bryggju um árið en Aðalgeir og Egil Olgeirssynir keyptu bátinn frá Ísafirði haustið 1985 og gerðu út til ársins 1990. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda Þorleifsson h/f í Ólafsfirði og hét Þorleifur Rögnvaldsson ÓF … Halda áfram að lesa Skálaberg ÞH 244

Húni HU 62

1102. Húni HU 62 ex Konráð BA 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Rækjubáturinn Húni HU 62 frá Blönduósi kemur hér til löndunar á Húsavík sumarið 1993 sem var að mig minnir einstaklega leiðinlegt hvað veðurfar varðaði. Báturinn hét upphaflega Símon Olsen ÍS 33 og var 35 brl. að stærð, smíðaður árið 1970 í Skipasmíðastöð Marselíusar … Halda áfram að lesa Húni HU 62

Eldeyjar Súla KE 20

1481. Eldeyjar Súla KE 20 ex Dalborg EA 317. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Útgerðarfélagið Eldey hf. keypti togarann Dalborgu EA 317 frá Dalvík árið 1991 og gaf honum nafnið Eldeyjar Súla KE 20. Togarinn var smíðaður í Ancona á Ítalíu árið 1971 en Söltunarfélag Dalvíkur hf. keypti hann til landsins frá Sardiníu árið 1977. Hér má … Halda áfram að lesa Eldeyjar Súla KE 20

Þórunn Þórðardóttir HF 300

3045. Þórunn Þórðardóttir HF 300. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessa myndasyrpu í gær þegar hafrannsóknarskipið Þórunn Þórðardóttir HF 300 kom til Hafnarfjarðar úr leiðangri. Skipið var smíðað hjá Astilleros Armon Vigo S.A. á Spáni og er 2000 BT að stærð og var afhent á síðasta ári. 3045. Þórunn Þórðardóttir HF 300. … Halda áfram að lesa Þórunn Þórðardóttir HF 300