Aldey ÞH 380

962. Aldey ÞH 380 ex Votaberg SU 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Aldey ÞH 380 kemur hér að landi á Húsavík eftir rækjutúr vorið 2005 en það var Íshaf hf. sem gerði hana út.

Upphaflega hét báturinn Óskar Halldórsson RE 157 og var smíðaður í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík. Hann nefndi hann eftir föður sínum, Óskari Halldórssyni útgerðarmanni og síldarspekúlant.  

Aldey ÞH 380 kom til heimahafnar 19. janúar árið 2004 og birtist eftirfarandi frétt á mbl.is þann dag:

Tog­skipið Ald­ey ÞH 380 kom í fyrsta skipti til nýrr­ar heima­hafn­ar á Húsa­vík í dag. Ald­ey hét áður Vota­berg SU 10 en er eitt þriggja skipa sem Íshaf hf. fékk í skipa­skipt­um við Eskju hf. á Eskif­irði.  Hin eru Guðrún Þor­kels­dótt­ir SU 211, sem fær nafnið Seley ÞH 381 og Hólma­nes SU 1, sem af­hent verður síðar.

 Strax var haf­ist handa við að út­búa Ald­ey til rækju­veiða og að sögn skip­verja stefnt að því að halda til veiða um leið og allt er orðið klárt.  

  Ald­ey er 379 brútt­ót­onna skip byggt í Hollandi 1964 og verður því fer­tugt síðar á ár­inu.  Skipið hét upp­haf­lega, og lengst af Óskar Hall­dórs­son RE 157, síðar Gest­ur SU 160, þá Vota­berg SU 10 þangað til það komst í eigu Íshafs að það fékk nafnið Ald­ey.

Aldey fékk nafnið Óskar ÞH 380 árið 2006 og varð svo Óskar RE 157 um árið síðar. Óskar fór í pottinn 2010, nánar tiltekið til Ghent í Belgíu.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd