
Húnaröst RE 550 hét upphaflega Sigurvin GK 51 og var báturinn smíðaður hjá Bátastöðinni Knörr á Akranesi árið 1988.
Ári síðar var báturinn seldur til Stöðvarfjarðar og varð Sigurvin SU 24, síðar SU 240.
Árið 1990 var Sigurvin seldur til Djúpavogs þar sem hann varð SU 380 og þar var hann til ársins 2022 en þá var hann seldur norður á Dalvík.
Á Dalvík varð Sigurvin EA 380 en í fyrra var loksins nafnabreyting á bátnum þegar hann var seldur til Reykjavíkur og fékk nafnið Húnaröst RE 550.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution