
Sæbjörg EA 184 úr Grímsey er hér á siglingu á Skjálfandaflóa haustið 2009, nánar tiltekið þann 10. september.
Sæbjörg EA 184 hét upphaflega Magnús Guðmundsson ÍS 97 frá Flateyri en síðar Máni HF 149, Vébjörn ÍS 301 og Linni SH 303 áður en Sæbjörg ehf. keypti bátinn árið 2006.
Það hefur teygst töluvert á bátnum í tvígang, hann var fyrst lengdur árið 1994 og aftur 1996. Báturinn, sem mælist tæplega 35 brúttótonn að stærð var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Herði í Njarðvík árið 1990.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution