
Frystitogarinn Haraldur Kristjánsson HF 2 liggur hér við bryggju í Hafnarfirði sem var hans heimahöfn en togarinn var smíðaður í Noregi fyrir Sjólastöðina.
Smíðin fór fram hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, Flekkefjord í Noregi og kom skipið til heimahafnar í Hafnarfirði 23. mars árið 1988.
Haraldur Kristjánsson HF 2 er systurskip Sjóla HF 1 sem Sjólastöðin fékk afhent haustið 1987.
Árið 1999 var Haraldur Kristjánsson HF 2 seldur til Haraldar Böðvarssonar á Akranesi og fékk skipið þá núverandi nafn, Helga María AK 16.
Helgu Maríu var breytt í ísfiskstogara í Alkorskipasmíðastöðinni í Gdansk árið 2013 og hóf veiðar sem slíkur árið 2014.
Síðar varð Helga María, RE 1 og enn síðar RE 3 en heitir í dag Ivilileq GR-2-210.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution