Egill SH 195

1246. Egill SH 195 ex Tungufell SH 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér gefur að líta Egil SH 195 áður en hann var yfirbyggður en þarna var m.a nýbúið að lengja bátinn, setja á hann bakka og skipta um brú.

Egill hét upphaflega Fylkir NK 102 og var smíðuð í Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1972 fyrir Drift hf. í Neskaupstað. 

Báturinn, sem upphaflega var 92 brl. að stærð var seldur til Hafnar í Hornafirði árið 1978 og fékk þá nafnið Lyngey SF 61.

Frá Höfn var báturinn gerður út til ársins 1989 er hann var seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Tungufell SH 31. Vorið 1992 var Tungufellið selt innan bæjar í Ólafsvík og fékk nafnið Egill SH 195.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd