Gullhólmi SH 201

264. Gullhólmi SH 201 ex Þórður Jónasson EA 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009.

Línuskipið Gullhólmi SH 201 leggur hér upp í veiðiferð eftir að hafa landað á Húsavík haustið 2009.

Það var Agustson ehf. í Stykkishólmi sem gerði hann út en upphaflega hét skipið Þórður Jónasson, fyrst RE 350 en lengst af EA 350. Smíðaður í Noregi 1964.

Lesa meira um skipið hér en það fór í brotajárn árið 2021.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd