Ásgrímur Halldórsson SF 250

3058. Ásgrímur Halldórsson SF 250. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2026. Hið nýja uppsjávarveiðiskip Skinneyjar-Þinganess, Ásgrímur Halldórsson SF 250, liggur hér við bryggju á Hornafirði en skipið kom í fyrsta skipti til heimahafnar fyrir nokkrum vikum. Skrokkur skipsins var smíðaður hjá skipasmíðastöð Karstensens í Póllandi og hann síðan dreginn til Danmerkur þar sem fullnaðarfrágangur fór fram hjá … Halda áfram að lesa Ásgrímur Halldórsson SF 250 →

Sigurvon ÍS 16

7051. Sigurvon ÍS 26 ex Tinni SH 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Sigurvon ÍS 26, kemur hér að landi í Reykjavík nú síðdegis, hét upphaflega Sómi II HF 199 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1987. Árið 1990 fékk báturinn nafnið Alli KE 22 með heimahöfn í Keflavík. Tveim árum síðar fékk hann nanið … Halda áfram að lesa Sigurvon ÍS 16 →

Skrúður RE 445

1445. Skrúður RE 445 ex Pétur Jakob SH 373. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Skrúður RE 445 hét upphaflega Fanney ÞH 130 og var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri árið 1975. Fanney var seld til Ólafsvíkur árið 1997 þar sem báturinn fékk nafnð Pétur Jacob SH 37, síðar SH 373. Nafnið Skrúður bar báturinn á árunum … Halda áfram að lesa Skrúður RE 445 →