
Strandveiðibáturinn Sigurvon ÍS 26, kemur hér að landi í Reykjavík nú síðdegis, hét upphaflega Sómi II HF 199 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1987.
Árið 1990 fékk báturinn nafnið Alli KE 22 með heimahöfn í Keflavík. Tveim árum síðar fékk hann nanið Elli KE 22 og síðar sama ár var báturinn seldur til Hornafjarðar.
Þar fékk hann nafnið Gróa SF 19 sem hann bar í þrjú ár en þá fékk hann nafnið Staðarey SF 60.
Árið 2007 var Staðarey komin á Blönduós og var HU 9 en fékk síðar nafnið Nonni HU 9.
Árið 2018 fékk báturinn nafnið Tinni SH 102 með heimahöfn á Hellisandi.
Frá árinu 2019 hefur báturinn borið nafnið Sigurvon ÍS 26, fyrst með heimahöfn í Súðavík en síðar á Ísafirði.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution