
Ásbjörn RE 50 kemur hér til hafnar í Reykjavík sumarið 2005 en hann var smíðaður fyrir Ísbjörninn hf. í Flekkefjørd í Noregi.
Ásbjörn kom í fyrsta skipti til heimahafnar 28. mars 1978 en þann 22. desember 1977 hafði systurskip hans Ásgeir RE 60 komið til landsins.
Ásbjörn og Ásgeir mældust 442 brl. að stærð, búnir 2100 hestafla Wichmannaðalvélum. Þeir voru smíðaðir fyrir Ísbjörninn hf. eins og áður segir.
Í nóvember 1985 sameinuðust Ísbjörninn hf. og BÚR og úr varð Grandi hf. sem fékk nafnið HB Grandi en heitir í dag Brim hf. í dag.
Þegar HB Grandi fékk nýja Engey RE frá Tyrklandi árið 2017 var Ásbjörn seldur úr landi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.