Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn

Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður á Akureyri í gær. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson. Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður á Akureyri í gær og er hann staðsettur á Höepfnerssvæðinu. Haukur Sigtryggur Valdimarsson tók meðfylgjandi myndasyrpu við þetta tækifæri. Ljósmyndir Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2026. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær … Halda áfram að lesa Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn →

Maliina Ittuk

IMO 9987988. Maliina Ittuk. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Hér gefur að líta grænlensku farþegaferjuna Maliina Ittuk við bryggju í Grindavík um helgina. Jón Steinar tók myndina og meðfylgjandi texta skrifaði hann á síðu sína Báta og bryggjurölt: "Þetta ku vera stærsta farþegaskip Grænlands í innanlands dagsferðum hjá þeim og einnig fyrsta nýsmíðin fyrir þá … Halda áfram að lesa Maliina Ittuk →

Til hamingju með daginn sjómenn

Frá kappróðri á Húsavík árið 2006. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Með þessari mynd sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Myndin var tekin á Sjómannadeginum árið 2006 og þarna etja húsvískir sjómenn kappi í kappróðri. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the … Halda áfram að lesa Til hamingju með daginn sjómenn →

Skemmtisigling á línuskipum Vísis

Páll Jónson GK 7 og Sighvatur GK 57 í skemmtisiglingu í morgun. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Línuskip Vísis í Grindavík fóru í skemmtisiglingu í tilefni Sjómannadagsins í morgun og tók Jón Steinar þessa myndasyrpu við það tilefni. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2026. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Skemmtisigling á línuskipum Vísis →

Sjómannadagshelgin runnin upp

Smábátar með signalinn uppi í Húsavíkurhöfn að morgni 6. júní 2026. Þá er Sjómannadagshelgin runnin upp og segja má með sanni að lítið fer orðið fyrir Sjómannadeginum á Húsavík og er það af sem áður var. Á meðfylgjandi mynd sem tekin var í morgun gefur að líta smábáta með signailinn uppi og það gleður augað. … Halda áfram að lesa Sjómannadagshelgin runnin upp →

Sighvatur Bjarnason VE 81

2281. Sighvatur Bjarnason VE 81 ex Gunnar Langva. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Sighvatur Bjarnason VE 81 kemur hér til hafnar í Reykjavík sumarið 2016. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum keypti skipið frá Noregi þar sem það bar nafnið Gunnar Langva og kom það til landsins vorið 1996. Sighvatur Bjarnason var smíðaður árið 1975 í Flekkefjord en lengdur … Halda áfram að lesa Sighvatur Bjarnason VE 81 →

Hringur GK 18

2728. Hringur GK 18. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Hringur GK 18 frá Hafnarfirði kemur hér að landi í Grindavík sumarið 2016. Báturinn er af gerðinni Seigur 1120 og var smíðaður á Siglufirði árið 2006. Árið 2019 fékk báturinn nafnið Halla Daníelsdóttir RE 770 en frá árinu 2022 hefur hann borið nafnið Fíi ÞH 11 og er með heimahöfn á … Halda áfram að lesa Hringur GK 18 →

Jakob Valgeir ÍS 84

977. Jakob Valgeir ÍS 84 ex Arnarnes HF 52. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Jakob Valgeir ÍS 84 frá Bolungarvík er hér á síldarmiðunum fyrir austan upp úr 1980, sennilega 1982. Báturinn hét upphaflega Búðaklettur GK 251 og var smíðaður í Noregi árið 1964 fyrir Jón Gíslason sf. í Hafnarfirði. Nánar tiltekið hjá Ankerlokken Verft A/S í … Halda áfram að lesa Jakob Valgeir ÍS 84 →