Dala-Rafn SI 508

2758. Dala Rafn SI 508 ex Dala-Rafn VE 508. Ljósmynd Vigfús Markússon 2026.

Vigfús Markússon tók þessa mynd af Dala-Rafni SI 508 þar sem hann var við rækjuveiðar við Snæfellsnes.

Dala Rafn VE 508 var smíðaður í Póllandi árið 2007 fyrir samnefnt útgerðarfélag. Þá var hann grænn en Ísfélag Vestmannaeyja keypti Dala-Rafn 2014 og með tímanum varð hann rauður.

Dala-Rafn fékk einkennisstafina SI fyrir rúmu ári og heimahöfn á Siglufirði.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd