
Skrúður RE 445 hét upphaflega Fanney ÞH 130 og var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri árið 1975.
Fanney var seld til Ólafsvíkur árið 1997 þar sem báturinn fékk nafnð Pétur Jacob SH 37, síðar SH 373.
Nafnið Skrúður bar báturinn á árunum 2003 til 2009 en þá fékk hann nafnið Siggi Þórðar GK 197.
Árið 2012 var báturinn keyptur aftur til Húsavíkur og fékk sitt gamla nafn, Fanney, og var gerður út til hvalaskoðunar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution