Freyja II RE 69

1590. Freyja II RE 69 ex Freyja VE 260. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Strandveiðibáturinn Freyja II RE 69, sem kemur hér til hafnar í Reykjavík í gær, hét upphaflega Alfa RE 23 og var smíðuð í Noregi árið 1981.

Árið 1985 var báturinn seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Freyja VE 260.

Í Eyjum var báturinn í tuttugu og fimm ár og alltaf undir nafninu Freyja VE 260 en ekki alltaf sami eigandi.

Það var svo árið 2010 sem báturinn var keyptur til Reykjavíkur og fékk nafnið Freyja II RE 69.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd