1468. Sylvía og 1267. Faldur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbátar Gentle Giants í morgun, Sylvía að fara frá bryggju og Faldur klár í fyrstu ferð dagsins. Og ekki skemmir veðurblíðan fyrir maður minn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Sylvía og Faldur
Oddeyrin
2978. Oddeyrin EA 210 ex Western Chieftain SO 237. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér kemur ein mynd til af Odeyrinni þar sem hún siglir á spegilsléttum pollinum og núna er myndin lóðrétt. Myndin var tekin í vikunni þegar hún kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Oddeyrin
Nýr bátur á Húsavík
7311. Hanna Ellerts SH 4 ex Korri SH 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Nýr bátur, Hanna Ellerts SH 4, kom til Húsavíkur eftir siglingu frá Stykkishólmi þaðan sem báturinn var keyptur. Um er að ræða níu metra langan Sómabát, smíðaðan árið 1991 í Bátasmiðju Guðmundar. Upphaflega hét báturinn Þyrí HF 42 en hefur í gegnum … Halda áfram að lesa Nýr bátur á Húsavík
Jón Ásbjörnsson RE 777 á Siglufirði
2755. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hérna kemur myndasyrpa af línubátnum Jóni Ásbjörnssyni RE 777 sem ég tók á Siglufirði fyrir skömmu. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak árið 2008 og er af gerðinni Víkingur 1200. Báturinn var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Vigur ehf. á Hornafirði … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson RE 777 á Siglufirði
Konsúll kemur úr hvalaskoðun
2938. Konsúll. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Farþegabáturinn Konsúll kemur hér úr hvalaskoðun á Eyjafirði í gær undir öruggri skipstjórna Adda skólabróður. Konsúll var smíðaður árið 1985 en bættist í hvalaskoðunarflota Íslendinga vorið 2017 þegar SHB Hvalaskoðun ehf. keypti hann frá Noregi. Ambassador ehf. gerði hann út til hvalaskoðunar frá Akureyri en í dag er báturinn … Halda áfram að lesa Konsúll kemur úr hvalaskoðun
Goðaborg SU 16
1068. Goðaborg SU 16 ex Sænes SU 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Goðaborg SU 16 liggur hér við bryggju á Seyðisfirði í vikunni en báturinn er í eigu Gullrúnar ehf. og er með heimahöfn á Breiðdalsvík. Báturinn var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1968. Upphaflega hét báturinn Valur NK 108 en lengi vel hét hann … Halda áfram að lesa Goðaborg SU 16
Oddeyrin getur geymt lifandi fisk í tönkum
2978. Oddeyrin EA 210 ex Western Chieftain SO 237. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér koma fleiri myndir af Oddeyrinni EA 210 þegar hún kom til heimahafnar á Akureyri í morgum. Á heimasíðu Samherja segir m.a: Tímamót urðu í sögu Samherja í dag og þar með íslenskum sjávarútvegi, er Oddeyrin EA kom til Akureyrar eftir gagngerar … Halda áfram að lesa Oddeyrin getur geymt lifandi fisk í tönkum
Oddeyrin EA 210 komin til heimahafnar
2978. Oddeyrin EA 210 ex Western Chieftain SO 237. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Oddeyrin EA 210, hið nýja skip Samherja, kom til heimahafnar á Akureyri í morgun og var þessi mynd tekin þá. Meira síðar... Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Oddeyrin EA 210 komin til heimahafnar
Skálanes NS 45
2501. Skálanes NS 45 ex Gunna Beta ST 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Skálanes NS 45 liggur hér í höfninni á Hafnarhólma í Borgarfirði eystra um helgina. Upphaflega hét báturinn Hafgeir HU 21. Báturinn var smíðaður árið 2001 í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði. Hann var með heimahöfn á Skagaströnd. Árið 2008 fékk hann nafnið Gunna … Halda áfram að lesa Skálanes NS 45
Sæþór kemur til hafnar á Dalvík
2705. Sæþór EA 101. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Sæþór EA 101 kemur hér til hafnar á Dalvík í vikunni en báturinn er gerður út til netaveiða af G.Ben útgerðarfélagi ehf. á Árskógssandi. Sæþór EA 101 er af gerðinni Víkingur 1500 og var smíðaður hjá bátagerðinni Samtak árið 2006. Hann mælist 29,04 BT að stærð og … Halda áfram að lesa Sæþór kemur til hafnar á Dalvík









