Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær

IMO 9333644. Rotsund ex Nordkinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norska flutningaskipið Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær en það ku vera að flytja laxaseiði frá Aberdeen til Þingeyrar. Rotsund hét upphaflega Storfoss og var smíðaður fyrir Eimskip í Vaagland Båtbyggeri AS í Noregi. Skipið er 80 metra langt og 16 metra breitt og mælist 2,990 … Halda áfram að lesa Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær →

Jóhanna Gísladóttir GK 357 við bryggju í Reykjavík

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd af Jóhönnu Gísladóttur GK 357 var tekin í gær þar sem skipið liggur við bryggju í Reykjavíkurhöfn. Eins og komið hefur fram á síðunni keypti Vísir hf. skipið frá Vestmannaeyjum og mun það koma í stað línuskipsins Jóhönnu Gísladóttur GK … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir GK 357 við bryggju í Reykjavík →

Keilir kemur til Reykjavíkur

2946. Keilir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar nú síðdegis þegar olíuskipið Keilir kom til Reykjavíkur og já, sólin skein. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir … Halda áfram að lesa Keilir kemur til Reykjavíkur →

Ný Cleopatra 36 til Fosnavåg í Noregi

Nærøybuen M-50-HØ. Ljósmynd Trefjar 2021. Kjell-Børre Petersen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Kjell-Børre verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem verður gerður út til netaveiða. Búnaður til netaveiða kemur frá Noregi en báturinn hefur þegar hafið veiðar. Báturinn, sem fékk nafnið Nærøybuen M-50-HØ, er 10.99 metrar … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Fosnavåg í Noregi →

Bylgja VE 75

2025. Bylgja VE 75. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Togskipið Bylgja VE 75 kom til Reykjavíkur síðdegis í gær og voru þessar myndir teknar þá. Svona nýmáluð og fín. Bylgja VE 75 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Mattíhas Óskarsson útgerðarmann og skipstjóra árið 1992. Hún hefur alla tíð verið í eigu hans en fyrirtækið … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75 →

Nýr Halldór NS 302

2790. Einar Hálfdáns ÍS 11 nú Halldór NS 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Áki í Brekku SU 760, sem áður hét Einar Hálfdáns ÍS 11, hefur nú fengið nafnið Halldór NS 302 og heimahöfn hans Bakkafjörður. Eins og áður hefur komið fram á síðunni hafði GPG Seafood ehf. bátaskipti við Gullrúnu ehf. á Breiðdalsvík og … Halda áfram að lesa Nýr Halldór NS 302 →

FISK Seafood kaupir 60 % hlut í Steinunni SH 167

1134. Steinunn SH 167 ex Ingibjörg RE 10. Ljósmynd Alfons Finnsson 2020. Gengið hefur verið frá samkomulagi um kaup FISK Seafood ehf., í gegnum dótturfélag sitt, á 60% eignarhlut í útgerðarfélaginu Steinunni hf. í Ólafsvík sem gert hefur út vertíðarbátinn Steinunni SH-167. Fimm bræður og fjölskyldur þeirra hafa rekið félagið í u.þ.b. hálfa öld. Eftir kaupin … Halda áfram að lesa FISK Seafood kaupir 60 % hlut í Steinunni SH 167 →