6526. Núpur HF 56 ex Núpur HU 56. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Handfærabáturinn Núpur HF 56 kemur hér að landi í Sandgerði sumarið 2012 og Sæljós GK 2 fylgir í kjölfarið. Núpur hét upphaflega Jógi ÍS og var smíðaður hjá Flugfiski hf. í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hann hét þessu nafni til ársins 1990 þegar hann … Halda áfram að lesa Núpur HF 56
Sæfari ÁR 170
1964. Sæfari ÁR 170 ex Grundfirðingur SH 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Sæfari ÁR 170 frá Þorlákshöfn var á rækju sumarið 2012 og kom þá nokkrum sinnum til Húsavíkur. Þessi mynd var tekin í byrjun júnímánaðar það ár og eitthvað bras með rækjutrollið varð til þess að þeir komu í land kallarnir. Sæfari ÁR 170 … Halda áfram að lesa Sæfari ÁR 170
Jón Garðar KE 1
2070. Jón Garðar KE 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Jón Garðar KE 1 kemur hér að landi í Njarðvík vorið 2002. Báturinn var smíðaður hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík árið 1990. Báturinn, sem var smíðaður fyrir Garðar Garðarsson í Keflavík, var upphaflega 9,7 brl. að stærð en þarna er búið að lengja hann. Það var gert … Halda áfram að lesa Jón Garðar KE 1
Húsey ÞH 382
1346. Húsey ÞH 382 ex Hólmanes SU 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Skuttogarinn Húsey ÞH 382 leggur hér upp í veiðferð á rækjuslóðina í febrúarmánuði 2005. Togarinn hét áður Hólmanes SU 1 og var smíðað á Spáni árið 1974. Húsey var 451 brl. að stærð. Lengd þess var 47,55 metrar og breiddin 9,50 metrar. Skipið … Halda áfram að lesa Húsey ÞH 382
Muggur GK 70
2510. Muggur GK 70 ex Muggur KE 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Muggur GK 70 kemur hér að landi í Sandgerði vorið 2008 og samkvæmt vefnum aba.is var hann seldur til Noregs í lok sumars það ár. Báturinn var upphaflega Muggur KE 2 og var smíðaður árið 2001 í Bátsmiðjunni Sólplasti ehf. í Sandgerði. Hann … Halda áfram að lesa Muggur GK 70
Jón á Hofi ÁR 42
1645. Jón á Hofi ÁR 42 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Jón á Hofi ÁR 42 leggur hér upp í veiðiferð frá Þorlákshöfn en það hefur verið brælustopp síðustu daga. Jón á Hofi ÁR 42 hét áður Þuríður Halldórsdóttir GK 94 en Rammi hf. keypti skipið af Þorbirninum hf. sumarið 2007. … Halda áfram að lesa Jón á Hofi ÁR 42
Akurey SF 31
1013. Akurey SF 31 ex Þórkatla II GK 197. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Þessi mynd var tekin haustið 1987 ef minnið er rétt því þá keypti Borgey hf. á Honafirði Þórkötlu II GK 197 og nefndi Akurey SF 31. Gæti verið að báturinn hafi farið í Njarðvíkurslippinn til að fá græna litinn og sé að … Halda áfram að lesa Akurey SF 31
Sæþór SF 244
1153. Sæþór SF 244 ex Sæþór SU 175. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1996. Sæþór SF 244 liggur hér við legufæri á Höfn í Hornafirði sumarið 1996. Við bryggju eru fv. Hafdís SF 75, Þórir II SF 777, Hvanney SF 51 og Sigurður Ólafsson SF 44 sem er eini báturinn á myndinni sem enn er gerður út … Halda áfram að lesa Sæþór SF 244
Jón á Hofi ÁR 62
1562. Jón á Hofi ÁR 62 ex Saukko III. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jón á Hofi ÁR 62 var keyptur til landsins frá Finnlandi árið 1980 og kom til landsins í byrjun nóvembermánaðar það ár. Það var Glettingur hf. í Þorlákshöfn sem keypti skipið sem var 276 brl. að stærð. Í 3. tbl. Ægis 1981 sagði … Halda áfram að lesa Jón á Hofi ÁR 62
Sjöfn ÞH 142
1013. Sjöfn ÞH 142 ex Akurey SF 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér togar Sjöfnin frá Grenivík á rækjuslóðinni um árið en það voru Hlaðir hf. sem gerðu bátinn út. Sjöfn EA 142 hét upphaflega Þórkatla II GK 197 og var smíðuð í Noregi árið 1966. Hún var smíðuð fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf. og mældist upphaflega … Halda áfram að lesa Sjöfn ÞH 142









