1379. Erlingur SF 65 ex Haförn EA 955. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Hér má sjá Erling SF 65 þar sem hann er í slipp í Neskaupstað sumarið 2004 en þegar þarna var komið við sögu var hann í eigu Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn. Hér má lesa sögu bátsins en hann hét upphaflega Kópanes BA 99. … Halda áfram að lesa Erlingur í slipp í Neskaupstað
Valdimar SH 106
1487. Valdimar SH 106 ex Alli Júl ÞH 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjubáturinn Valdimar SH 106 frá Grundarfirði liggur hér við bryggju á Húsavík sumartið 2003. Valdimar, sem var í eigu Snæfells ehf., hét upphaflega Ásbjörg ST 9 og var smíðaður í Stykkishólmi árið 1977.Lesa má um sögu bátsins hér. Með því að smella … Halda áfram að lesa Valdimar SH 106
Þorvarður Lárusson SH 129
185. Þorvarður Lársusson SH 129 ex Sigþór ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Rækjubáturinn Þorvarður Lárusson SH 129 liggur hér í höfn á Dalvík í júníbyrjun árið 2004. Hann var í eigu Snæfells ehf. sem keypti hann í ársbyrjun 2002. Upphaflega Sigurpáll GK 375 sem var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand … Halda áfram að lesa Þorvarður Lárusson SH 129
Muggur KE 2
2510. Muggur KE 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Á dögunum birtist mynd af Mugg GK 70 á síðunni og þar kom fram að hann hafi upphaflega verið KE 2. Og hér birtist Muggur KE 2 eins og hann leit út vorið 2002 en hann var smíðaður ári fyrr í Sandgerði. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Muggur KE 2
Von EA 38
5348. Von EA 38 ex Vestri EA 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Hér kemur handfærabáturinn Von EA 38 að landi á Húsavík sumarið 2002. Hann var þá í eigu Grétars Ó. Gíslasonar á Akureyri. Samkvæmt vefnum aba.is var báturinn, sem er 3 brl. að stærð, smíðaður árið 1955 af Nóa bátasmið á Akureyri. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Von EA 38
Sørfold F-555-M í Reykjavík 2002
IMO 9251901. Sørfold F-555-M. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Hér birtast myndir af norska loðnuskipinu Sørfold F-555-M sem teknar voru í Reykjavík í júnímánuði árið 2002. Skipið heitir í dag Nordfisk N-1-B og birtist hér á síðunni fyrr í dag. Skipið var smíðað árið 2002 og er því glænýtt þegar myndirnar voru teknar. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Sørfold F-555-M í Reykjavík 2002
Nordfisk N-1-B á Fáskrúðsfirði
IMO 9251901. Nordfisk N-1-B ex Sørfold. Ljósmynd Þorgeir Baldursson 2022. Norska loðnuskipið Nordfisk N-1-B er hér á Fáskrúðsfirði en myndina tók Þorgeir Baldursson í gær. Skipið er smíðað árið 2002 og hét upphaflega Sørfold. Það er með heimahöfn í Bodø og hefur heitið Nordfisk frá árinu 2004. Nordfisk er 64 metrar að lengd, 14 metra … Halda áfram að lesa Nordfisk N-1-B á Fáskrúðsfirði
Stokksey ÁR 40
1037. Stokksey GK 40 ex Dagfari GK 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Stokksey ÁR 40 kemur að bryggju á Húsavík vorið 2003 en báturinn var á netum ef minnið er rétt. Upphaflega Dagfari ÞH 70 smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 40
Ný Cleopatra 36B til Vardø í Noregi
Østkapp TF-336-V. Ljósmynd Trefjar 2022. Østkapp heitir nýr beitingavélabátur sem Brynjar Bangsund útgerðarmaður og skipstjóri frá Vardø fékk afnetan á dögunum frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Brynjar verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem er af gerðinni Cleopatra 36B. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 18 brúttótonn að stærð. Aðalvél bátsins er af gerðinni … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36B til Vardø í Noregi
Skonnortan Hildur
1354. Hildur í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta skonnortuna Hildi við flotbryggju í Húsavíkurhöfn. Myndin tekin í kvöld en veður var stillt og kalt. Og örlaði á norðurljósum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Skonnortan Hildur









