Samningur um smíði nýs rannsóknaskips undirritaður

Tölvumynd af rannsóknarskipinu sem ætlað er að koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar. Í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands samþykkti Alþingi í júní 2018 þingsályktun um að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra væri falið að hefja undirbúning að smíði hafrannsóknaskips sem ætlað er að koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar. Eftir nær þriggja ára vinnu við hönnun … Halda áfram að lesa Samningur um smíði nýs rannsóknaskips undirritaður →

Björg Jónsdóttir og Mánafoss

1508. Björg Jónsdóttir ÞH 321 - Mánafoss. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Björg Jónsdóttir ÞH 321 kemur hér til hafnar á Húsavík í lok marsmánaðar árið 2003. Við Norðurgarðinn er Mánafoss sem þá var á ströndinni. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir og Mánafoss →

Fín veiðiferð Örfiriseyjar RE í Barentshafið

2170.Örfirisey RE 4 ex Polarborg 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Frystitogarinn Örfirisey RE er nú á Vopnafirði. Þangað kom togarinn í gær eftir veiðiferð í norsku landhelgina í Barentshafi. Á heimasíðu Brims segir að löndun hafi hafist í gær en stefnt sé að því að togarinn fari aftur í norsku lögsöguna og hann láti úr … Halda áfram að lesa Fín veiðiferð Örfiriseyjar RE í Barentshafið →

Hoffellið á Skjálfanda

2885. Hoffell SU 80 ex Smaragd. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Í þessum skrifuðu orðum er uppsjávarveiðiskip Fáskrúðsfirðinga, Hoffell SU 80, að sigla um Skjálfandaflóa, sennilega að svipast um eftir loðnu. Þessi mynd er tekin á Húsavíkurhöfða og Hoffellið á leið inn flóann með Flatey í baksýn. Hoffell SU 80, sem áður hét Smaragd, er smíðað … Halda áfram að lesa Hoffellið á Skjálfanda →

Reginn ÁR 228

1102. Reginn ÁR 228 ex Reginn HF 228. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Reginn Ár 228 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn en myndina tók Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 í morgun. Reginn hét upphaflega Símon Olsen ÍS 33 og var smíðaður 1970 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Hefur einnig borið nöfnin … Halda áfram að lesa Reginn ÁR 228 →

Háey I landaði í Grindavík í dag

2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Línubáturinn Háey I ÞH 295 kom til löndunar í Grindavík í dag og tók Jón Steinar þessa mynd af henni við bryggju. Hún var að fiska vel að sögn ljósmyndarans, aflinn ein 24-25 tonn en það er GPG Seafood ehf. sem á og gerir bátinn … Halda áfram að lesa Háey I landaði í Grindavík í dag →