Alexander kom til Húsavíkur fyrir stundu

IMO 9433353. Alexander ex Cecilia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Alexander kom til Húsavíkur fyrir stundu og lagðist að Bökugarðinum hvar hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka verður skipað upp. Alexander, sem áður hét Cecilia, var smíðað 2009 og siglir undir fána Antigua & Barbuda með heimahöfn í Saint John´s. Skipið er 117 metrar að lengd … Halda áfram að lesa Alexander kom til Húsavíkur fyrir stundu →

Smábátar við bryggju

Smábátar við bryggju á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd sýnir smábáta við bryggju á Húsavík síðdegis í dag. Háey I ÞH 295 kom af vertíð í gær og verið að landa úr Karólínu ÞH 100 eftir róður dagsins. Strandveiðibátar í forgrunni. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Smábátar við bryggju →

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9138329. Hamburg ásamt hafnsögubátnum Sleipni síðdegis í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun og þar var á ferðinni Hamburg sem hefur heimahöfn í Nassau á Bahamaeyjum. Hamburg, sem áður hér C.Columbus, var smíðað árið 1997. Það er 144 metra langt og mælist 15,067 GT að stærð. Það tekur … Halda áfram að lesa Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun →

Granit á útleið frá Tromsø

IMO 9796896. Granit H-11-AV. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Norski frystitogarinn Granit H-11-AV er hér á útleið frá Tromsø en Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking myndaði hann í morgun þegar hann var á landleið. Hann var smíðaður fyrir Halstensen Granit AS í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhentur í september árið 2017. Granit er 81,20 metrar að … Halda áfram að lesa Granit á útleið frá Tromsø →

Jón Pétur að draga grásleppunetin

2033. Jón Pétur RE 411. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022 Jón Steinar tók þessar myndir af grásleppubátnum Jóni Pétri RE 411 í gær þar sem hann var að draga netin á Hraunsvíkinni. Jón Pétur var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1987 og lengdur tíu árum síðar. 2033. Jón Pétur RE 411. Ljósmyndir Jón Steinar … Halda áfram að lesa Jón Pétur að draga grásleppunetin →

Hópsnes GK 77

2457. Hópsnes GK 77 ex Katrín SH 575. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Hópsnes GK 77 kemur hér að landi í Grindavík í gær. Stakkavík gerir hann út. Upphaflega hét báturinn Katrín RE 375 og var smíðaður árið 2000 hjá Bátagerðinni Samtak fyrir Rafn ehf. í Reykjavík. Sumarið 2006 varð báturinn SH 575 og heimahöfn Ólafsvík. … Halda áfram að lesa Hópsnes GK 77 →

Jóhanna Gísladóttir

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Jón Steinar tók þessar myndir í dag þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 hélt til veiða frá Grindavík. Hún landaði í morgun 214 körum sem gerir um það 70 tonn eftir þriggja sólarhringa túr á Eldeyjarbanka. 2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir →

Hrafn GK 111 farinn áleiðis í pottinn

1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Síðdegis í gær 11. maí, á lokadegi vetrarvertíðar, sigldi línuskipið Hrafn GK 111 út frá Grindavík áleiðis til Ghent í Belgíu þar sem hann fer í pottinn víðfræga. Hrafn GK 111 hét upphaflega Gullberg VE 292 og var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111 farinn áleiðis í pottinn →