Egill og Harðbakur í slipp á Akureyri

1246. Egill SH 195 - 2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Á þessari mynd frá því í gær gefur að líta Egil SH 195 frá Ólafsvík og togara ÚA, Harðbak EA 3, í slippnum á Akureyri. Egill SH 195, sem m.a er í vélarskiptum, var smíðaður á Seyðisfirði árið 1972. Hann hefur verið … Halda áfram að lesa Egill og Harðbakur í slipp á Akureyri →

Sindri GK 98

1500. Sindri GK 98 ex Sindri RE 46. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Handfærabáturinn Sindri GK 98 kemur hér að landi í Sandgerði sl. þriðjudag sem er hans heimahöfn. Báturinn var smíðaður fyrir Jón Sigurðsson í Reykjavík árið 1977. Smíðin fór fram hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd og fékk hann nafnið Sindri RE 46. Hann … Halda áfram að lesa Sindri GK 98 →

Tjúlla GK 29

2595. Tjúlla GK 29 ex Grunnvíkingur HF 163. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Tjúlla GK 29 kemur hér að landi í Sandgerði en myndirnar voru teknar í gærmorgun. Upphaflega hét báturinn Grunnvíkingur HF 163 og var smíðaður hjá Sólplasti í Sandgerði árið 2003. Heimahöfn Hafnarfjörður. Hann hefur heiti Tjúlla GK 29 frá árinu 2015, fyrst … Halda áfram að lesa Tjúlla GK 29 →

Hermundur og Herborg

6429. Herborg HF 67 ex Eva HF 67. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Einum þeirra strandveiðibáta sem ég myndaði í morgun stýrði Húsvíkingur sem lengi réri með pabba á Kristbjörgu ÞH 44. Hermundur Svansson heitir hann og eftir að hann komst á aldur og hættur á stærri bátunum fékk hann sér trilluhorn og nefndi hana Herborgu. … Halda áfram að lesa Hermundur og Herborg →

Nýja Hoffell SU 80 á Fáskrúðsfirði

IMO 9414709. Hoffell SU 80 ex Asbjörn HG 265. Ljósmynd Bergþór Bjarnason 2022. Nýja Hoffellið er komið inn á Fáskrúðsfjörð í brakandi blíðu og fékk ég þessa mynd senda áðan. Fjallið sem skipið er nefnt eftir gnæfir þarna yfir th. á myndinni. Í dag kl. 14:00 verður móttökuathöfn við Bæjarbryggjuna þar sem hið glæsilega skip … Halda áfram að lesa Nýja Hoffell SU 80 á Fáskrúðsfirði →

Guðbjörg GK 666

2468. Guðbjörg GK 666 Guðbjörg HF 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Línubáturinn Guðbjörg GK 666 kemur hér að landi á Siglufirði sumarið 2018 en hann var gerður út af Stakkavík ehf. í Grindavík. Upphaflega hét báturinn Ársæll Sigurðsson HF 80 og var smíðaður í Kína árið 2001. Um bátinn, sem lengdur var í Skipasmíðastöð Njarðvíkur … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 666 →