Laxá í heimahöfn á Húsavík

Flutningaskipið Laxá í heimahöfn á Húsavík vorið 1975. Á þessari mynd má sjá flutningaskipið Laxá í fyrsta skipti í heimahöfn á Húsavík vorið 1975. Ekki er nafn ljósmyndara kunnungt en myndin kom úr safni Péturs Jónassonar ljósmyndara á Húsavík. Sigurður Pétur Björnsson fréttaritari Morgunblaðsins reit eftirfaranadi frétt sem birtist í blaðinu þann 20 maí 1975: … Halda áfram að lesa Laxá í heimahöfn á Húsavík →

Björg Jónsdóttir ÞH 321

586. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Langanes ÞH 321. Ljósmynd Pétur Jónasson. Hér koma myndir af Björgu Jónsdóttur ÞH 321, þeirri fyrstu af sjö sem Langanes gerði út á sínum tíma. Björg Jónsdóttir ÞH 321, sem var 76 brl. að stærð, hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321 →

Sighvatur GK á útleið frá Grindavík

1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Sighvatur GK 57 lá fyrir dróna Jóns Steinars í kvöld þegar hann lagði upp í veiðiferð frá Grindavík. Hann kom í land í morgun til löndunar. Aflinn var um 240 kör sem gerir tæp 80 tonn. Uppistaða aflans var keila, eða rúm 160 … Halda áfram að lesa Sighvatur GK á útleið frá Grindavík →

Bátar við bryggju á Húsavík

Bátar við bryggju á Húsavík Ljósmynd Pétur Jónasson. Á þessari mynd frá því um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar má m.a sjá síldarbáta við bryggju á Húsavík. Álít að myndin sé tekin ca. 1965. Þetta eru Akurey RE 6, Helgi Flóventsson ÞH 77 og Sigurður Bjarnason EA 450. Aftan við þá er Eldborg GK 13 … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Húsavík →

Nýr Indriði Kristins frá Trefjum

3007. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd Alfons Finnsson 2022. Útgerðarfélagið Þórsberg ehf. á Tálknafirði fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 40BB beitningavélarbáta frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Nýi báturinn heitir Indriði Kristins BA 751 og er hannaður í samstarfi við Ráðgarð ehf. Báturinn er 12,5 metrar á lengd, 6,5metra breiður  og mælist 30 brúttótonn.  … Halda áfram að lesa Nýr Indriði Kristins frá Trefjum →

Ásgrímur Halldórsson SF 250

2780. Ásgrímur Halldórsson SF 250 ex Lunar Bow. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Ásgrímur Halldórsson SF 250 er hér að makrílveiðum á dögunum en það er Skinney-Þinganes hf. sem gerir hann út. Ásgrímur Hallórsson SF 250 var smíðaður hjá Simek skipamíðastöðinni í Noregi árið 2000 fyrir Lunar Fishing í Skotlandi og hlaut þá nafnið Lunar Bow.   … Halda áfram að lesa Ásgrímur Halldórsson SF 250 →

Þegar Sæborgin kom ný

1475. Sæborg ÞH 55. Ljósmynd Pétur Jónasson 1977. Pétur Jónasson ljósmyndari á Húsavík tók þessar myndir þegar Sæborg ÞH 55 kom ný til Húsavíkur. Það var að ég held í byrjun marsmánaðar 1977, frekar en í lok febrúarmánaðar, sem hún sigldi fánum prýdd inn í höfnina og vel var tekið á móti henni. Fram á … Halda áfram að lesa Þegar Sæborgin kom ný →

Háey I byrjuð að róa eftir sumarfrí

Unnið að lönfun úr Háey I á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Línubáturinn Háey I ÞH 295 hefur hafið róðra eftir sumarfrí og landað á Húsavík. Það er GPG Seafood sem gerir bátinn út en hann hóf veiðar í lok síðasta árs. Hér að neðan eru myndir af bátnum koma að landi í … Halda áfram að lesa Háey I byrjuð að róa eftir sumarfrí →