2890. Akurey AK 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessar myndir af skuttogaranum Akurey AK 10, þar sem hún var í slipp í Reykjavík, voru teknar fyrir viku síðan. Akurey AK 10 er í eigu Brims hf. í Reykjavík og er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Céliktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul. 2890. Akurey … Halda áfram að lesa Akurey í slipp
Háey II & Geir
2757. Háey II ÞH 275 - 2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Það var stafalogn við Húsavíkurhöfn í gærkveldi þegar þessi mynd var tekin. Háey II, nýkomin úr skveringu, og Geir frá Þórshöfn ligga þarna með erlenda skútu á milli sín. Ekkert meira um það að segja. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Háey II & Geir
Kwintebank við Bökugarðinn
IMO 9234288. Kwintebank. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hollenska flutningaskipið Kwintebank kom til Húsavíkur í vikunni með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Kwintebank, sem er með heimahöfn í Delfzijl, var smíðað í Hollandi árið 2002. Skipið er 6,378 GT að stærð, lengd þess er 133 metrar og breiddin 16 metrar. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Kwintebank við Bökugarðinn
Jörvi ÞH 300
1310. Jörvi ÞH 300. Ljósmynd Pétur Jónasson. Jörvi ÞH 300 var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd og afhentur árið 1973. Hann var smíðaður fyrir feðgana Þórarinn Vigfússon og Hinrik Þórarinsson á Húsavík. Félag þeirra hét Hagbarður hf. og fengu þeir bátinn, sem var 30 brl. að stærð, afhentan á vormánuðum 1973. Í Morgunblaðinu … Halda áfram að lesa Jörvi ÞH 300
Haförn ÞH 26
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessi mynd var tekin þegar dragnótabáturinn Haförn ÞH 26 kom til hafnar á Húsavík í dag. Veðurblíða á Skjálfanda eins og sjá má. Hér má lesa um bátinn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Haförn ÞH 26
Sævík komin úr breytingum
2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla. GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Sævík GK 757 kom til Grindavíkur í gærkveldi eftir að hafa verið í slipp í Skipasmíðastöð Njarðvíkur að undanförnu. Þar var hún meðal annars lengd um þrjá metra, ný 60 kw. ljósavél sett í hana og svokallaður "skriðdreki" settur á dekkið … Halda áfram að lesa Sævík komin úr breytingum
Mars RE 270
2986. Mars RE 270 ex Sólborg RE 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Línu- og netabáturinn Mars RE 270 liggur hér við bryggju í Reykjavík en hann er í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur. Mars var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1988 og hét áður Sólborg RE 27. Báturinn er 34 metrar að lengd og … Halda áfram að lesa Mars RE 270
Fagraberg FD 1210
IMO 9184641. Fagraberg FD 1210 ex Krúnborg. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Hér gefur að líta færeyska uppsjávarveiðiskipið Fargraberg FD 1210 við makrílveiðar fyrr í sumar. Fagraberg var smíðað árið 1999 og hét áður Krúnborg. Skipið er 2,832 brúttótonn að stærð, lengd þess er 83 metrar og breiddin 14 metrar. Fagraberg FD 1210 er með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Fagraberg FD 1210
Austfirðingur SU 205
2640. Austfirðingur SUU 205 ex Guðrún GK 47. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Austfirðingur SU 205 kom til Húsavíkur í kvöld en hann hefur stundað handfæraveiðar síðustu mánuðina. Það er Gullrún ehf. á Breiðdalsvík sem gerir bátinn, sem hét upphaflega Dúddi Gísla GK 48, út. Hann var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirði árið 2004 og … Halda áfram að lesa Austfirðingur SU 205
Vestri BA 63
3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Rækjutogarinn Vestri BA 63 frá Patreksfirði kom til hafnar á Húsavík í morgun og hafði hér stutta viðdvöl. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi í vetur. Í Noregi hét það Tobis en fékk nafnið Vestri BA 63 og kom í stað eldri og minni báts … Halda áfram að lesa Vestri BA 63









