Snæfell mun aðallega veiða grálúðu – og karfa

2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Eins og áður hefur komið fram á síðunni kom Snæfell EA 310, frystitogari Samherja, kom til Akureyrar sl. laugardag. Samherji keypti skipið af Framherja í Færeyjum á árinu. Á heimasíðu fyrirtækisins segir: Ýmsar endurbætur voru gerðar á skipinu í kjölfar kaupanna, sem aðallega … Halda áfram að lesa Snæfell mun aðallega veiða grálúðu – og karfa →

Börkur að makrílveiðum

2983. Börkur NK 122. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Uppsjávarveiðiskipið Börkur NK 122 er hér að makrílveiðum í Síldarsmugunni en myndina tók Hólmgeir Austfjörð um helgina. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar sagði í gær: Hluti makrílflotans íslenska er nú að veiðum í íslenskum sjó, veiðin hefur verið misjöfn á milli skipa.  Fiskurinn sem er að fást er stór … Halda áfram að lesa Börkur að makrílveiðum →

Zijlborg kom til Húsavíkur í kvöld

IMO 9229075. Zijlborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Zijlborg kom til Húsavíkur í kvöld eftir rúmlega fjögurra sólarhringa siglingu frá Hollandi. Skipið lagðist að Bökugarðinum hvar skipað verður upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka. Zijlborg siglir undir hollenskum flaggi með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er 4,938 GT að stærð og var smíðað árið 2001. … Halda áfram að lesa Zijlborg kom til Húsavíkur í kvöld →

Snæfell á Eyjafirði

2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Fyrstu myndirnar af Snæfellinu í gær tók ég á Hjalteyri og hér birtast nokkrar þeirra en eins og segir í fyrri færslu kom skipið til heimahafnar á Akureyri í gær. 2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2022. Með … Halda áfram að lesa Snæfell á Eyjafirði →

Knörrinn

306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Knörrinn kom úr hvalaskoðun nú síðdegis og því var um að gera að smella af henni mynd eða tveim. Knörrinn var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Auðunn EA 157 með heimahöfn í Hrísey.  Eftir að hafa verið gerður út til … Halda áfram að lesa Knörrinn →