1907. Hraunsvík GK 75 ex Konráð SH 60. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Hér birtist myndasyrpa af Hraunsvík sem Jón Steinar tók í Grindavík um hádegisbil í gær. Strákarnir á Hraunsvíkinni þurftu að gera hlé á að draga skötuselsnetin vegna þess að glussaslanga gaf sig og skjótast í land og sækja nýja. Þeir héldu svo strax … Halda áfram að lesa Hraunsvík GK 75 – Myndasyrpa
Flokkur: Smábátar
Landað úr Karólínu
2760. Karólína ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línubáturinn Karólína ÞH 100 kom að landi á Húsavík síðdegis og var þessi mynd tekin þegar löndun stóð yfir. Afli dagsins um fimm tonn og uppistaða hans þorskur. Karólína ÞH 100 er í eigu Doddu ehf. á Húsavík og var smíðuð hjá Samtak í Hafnarfirði árið 2007. … Halda áfram að lesa Landað úr Karólínu
Eva BA 197
6181. Eva BA 197 ex Eva NS 197. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Strandveiðibáturinn Eva BA 197, sem gerður er út af Gulldrangi ehf., kemur hér að landi á Patreksfirði í sumar. Heimahöfn bátsins er Patreksfjörður. Eva var smíðuð árið 1980 í Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði og hét upphaflega Viggó KE 201. Síðar bar hann … Halda áfram að lesa Eva BA 197
Örninn GK 204
2606. Örninn GK 204 ex Guðfinnur GK 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Línubáturinn Örninn GK 204 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2008. Báturinn var smíðaður hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði fyrir Guðmund Ragnar Guðmundsson útgerðarmaður frá Drangsnesi. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 38, var afhentur í febrúar 2004 og fékk nafnið Kristbjörg … Halda áfram að lesa Örninn GK 204
Máni HF 149
1190. Máni HF 149 ex Máni ÍS 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Máni HF 149 var upphaflega SU 38 og smíðaður í Bátalóni árið 1971 fyrir þá Stefán Aðalsteinsson og Gunnlaug Reimarsson á Djúpavogi. Báturinn hét Máni alla tíð en hann var tekinn af skipaskrá árið 2008. Þegar myndin var tekin var hann í eigu Útvíkur … Halda áfram að lesa Máni HF 149
Elín SH 170
6859. Elín SH 170. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Elín SH 170 var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1987 og er tæpar 6 brl. að stærð. Báturinn er í eigu Beiti ehf. og er með heimahöfn í Stykkishólmi en upphaflega var hann smíðaður fyrir Kristinn Gestsson þar í bæ. Báturinn hefur verið í eigu … Halda áfram að lesa Elín SH 170
Bára SI 10
1774. Bára SI 10 ex Síldin AK 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Bára SI 10 var gerð út frá Siglufirði árin 2008-2012 og eins og kemur fram í færslunni hér á undan hét hún upphaflega Síldin AK 88. Báturinn heitir í dag Sigurveig ST 22 og er með heimahöfn á Drangsnesi. Með því að smella … Halda áfram að lesa Bára SI 10
Síldin AK 88
1774. Síldin AK 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Síldin AK 88 var smíðuð fyrir Guðjón Gíslason í Bátastöðinni Knörr ehf. á Akranesi árið 1987. Báturinn , sem var rétt innan við 10 brl. að stærð, var einn af mörgum bátum sömu gerðar sem Körr smíðaði á þessum tíma. Síldin var gerð út frá Akranesi til ársins … Halda áfram að lesa Síldin AK 88
Margrét HF 148
1331. Margrét HF 148 ex Margrét SI 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Margrét HF 148 hét Árni Gunnlaugs ÍS 32 og var smíðaður fyrir Bolvíkinga árið 1973 í Bátalóni í Hafnarfirði. Eigendur Árna Gunnlaugs ÍS 32, sem var 11 brl. að stærð voru Sverrir Sigurðsson og Friðberg Emanúelsson. Báturnn var seldur til Vestmannaeyja árið 1976 þar … Halda áfram að lesa Margrét HF 148
Bergkvist SU 409
1261. Bergkvist SU 409. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bergkvist SU 409 var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga og gerður þaðan út undir þessu nafni alla tíð. Bergkvist er svokallaður Bátalónsbátur, 11 brl. að stærð smíðaður árið 1972 í Bátalóni í Hafnarfirði. Báturinn, sem er í eigu Jóns Bergkvistssonar, ku vera enn til inni í skúr á Fáskrúðsfirði en … Halda áfram að lesa Bergkvist SU 409









