Kristín HU 219

7526. Kristín HU 219 ex Beggi á Varmalæk HU 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Í gær kom að landi á Húsavík handfærabáturinn Kristín HU 219 sem reyndar hefur fengið skráninguna ÞH 55 og heimahöfn á Raufarhöfn. Það eru Möðruvellir ehf. sem nýverið keypti bátinn frá Blönduósi en áður var hann gerður út undir nafninu Beggi … Halda áfram að lesa Kristín HU 219 →

Fram og fleiri trillur

1322. Fram ÞH 171 og fleiri trillur á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd dúkkaði upp hjá mér í filmusafninu og var skönnuð en hún sýnir Fram ÞH 171 ásamt fleiri trillum þar sem þær standa upp á á landi á Húsavík. Reyndar hef ég nú ekki flokkað dekkaða smábáta sem trillur en það er … Halda áfram að lesa Fram og fleiri trillur →

Óli á Stað

2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Jón Steinar tók þessar myndir í dag þegar línubáturinn Óli á Stað GK 99 nálgaðist heimahöfn í Grindavík. Afli dagsins var hálft fjórða tonn en aðeins helmingur línunnar lagður. Jón Steinar hefur það eftir strákunum að það sé komin "loðnulykt" á svæðið og þá er ekki … Halda áfram að lesa Óli á Stað →

Björn Kristjónsson SH 164

7716. Björn Kristjónsson SH 164. Ljósmynd Vigfús Markússon. Björn Kristjónsson SH 164 var smíðaður fyrir Jóhann Steinsson í Ólafsvík hjá Bátasmiðjunni Bláfelli árið 2012. Báturinn, sem er 6,15 brl. að stærð og búinn 275 hestafla Cumminsvél, er með heimahöfn í Ólafsvík. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Björn Kristjónsson SH 164 →