Ásdís ÓF 9

2596. Ásdís ÓF 9 ex Ádís RE 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Ásdís ÓF 9 kemur hér að landi á Siglufirði en Gunnar Gunnarsson ehf. gerir hana út til handfæraveiða. Ásdís hét upphaflega Björn SH og var smíðaður hjá Bátahöllinni á Hellisandi árið 2003. Árið 2009 fær hann Ásdísarnafnið og er RE 15 en samkvæmt … Halda áfram að lesa Ásdís ÓF 9 →

Höfrungur ÞH 22

5440. Höfrungur ÞH 22 ex Höfrungur EA 303. Ljósmynd Pétur Jónasson. Jóhannes Straumland siglir hér Höfrungi ÞH 22 um höfnina á Húsavík og Pétur Jónasson myndar bátinn sem keyptur var til Húsavíkur árið 1974. Höfrungur var upphaflega EA 303 og smíðaður árið 1972 af Baldri Halldórssyni skipasmið á Hlíðarenda við Akureyri. Árið 1982 fékk báturinn … Halda áfram að lesa Höfrungur ÞH 22 →

Eilífur SI 60

6484. Eilífur SI 60 ex Smyrill ÞJ 57. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Eilífur SU 60 kemur hér að landi á Siglufirði á dögunum þaðan sem hann er gerður út. Eilífur hét áður Smyrill ÞH 57 en upphaflega Sómi HF 100 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1983. Eilífur er tæpar 5 … Halda áfram að lesa Eilífur SI 60 →

Feðgar landa úr Nirði ÞH 444

7311. Njörður ÞH 444 ex Hanna Ellerts SH 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessar myndir voru teknar á Húsavík í dag þegar Njörður ÞH 444 kom til hafnar. Sigurgeir Pétursson, sem jafnan stýrir mun stærra fleyi hinum megin á hnettinum, var að koma úr strandveiðiróðri og Pétur faðir hans Olgeirsson kom til aðstoðar við löndun. … Halda áfram að lesa Feðgar landa úr Nirði ÞH 444 →

Blíðfari ÓF 70

2069. Blíðfari ÓF 70 ex Sæborg SU 400. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Blíðfari ÓF 70 kemur hér að landi á Siglufirði í gær en báturinn stundar alla jafna róðra þaðan. Blíðfari hét upphaflega Ólafur HF 251 og var smíðaður árið 1990 hjá Mótun í Hafnarfirði. Ólafur HF 251 var seldur til Siglufjarðar árið 2005 … Halda áfram að lesa Blíðfari ÓF 70 →

Strandveiðibátar taka olíu

6836. Jón Jak ÞH 8 - 6969. Lilja ÞH 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta strandveiðibátana Jón Jak ÞH 8 og Lilju ÞH 21 þar sem kallarnir voru að taka olíu eftir róður gærdagsins. Farþegar að tínast um borð í hvalaskoðunarbátinn Garðar í baksýn en hvorki gaf veður til strandveiða né hvalaskoðunar … Halda áfram að lesa Strandveiðibátar taka olíu →