6790. Sævaldur ÞH 216 ex Hafey SK 194. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Sævaldur ÞH 216 kemur hér til hafnar á Húsavík í vikunni en það er Einar Ófeigur Magnússon sem á hann og gerir út. Sævaldur hét upphaflega Gunnar HF 139 og var smíðaður í Garðarbæ árið 1986. Á vefnum aba.is má lesa um … Halda áfram að lesa Sævaldur ÞH 216 kemur til hafnar
Flokkur: Smábátar
Lundey ÞH 350
6961. Lundey ÞH 350 ex Gáski AK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Lundey ÞH 350 kemur hér að landi á Húsavík í gærmorgun. Lundey hét upphaflega Gáski AK 20 og var smíðuð í Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði árið 1987. Kristbjörn Árnason keypti bátinn til Húsavíkur árið 1991 en Árni Björn sonur hans gerir … Halda áfram að lesa Lundey ÞH 350
Snorri GK 1
7255. Snorri GK 1 ex Snorri GK 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Snorri GK 1 kemur hér að landi í Sandgerði á dögunum en hann er gerður út af Hafbakka ehf. með heimahöfn í Sandgerði. Sómabáturinn Snorri GK 1 var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1990. Hans upphaflega nafn var Brynjar KE … Halda áfram að lesa Snorri GK 1
Bjarmi EA 112
2577. Bjarmi EA 112 ex Demus GK 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Bjarmi EA 112 kemur hér að landi á Dalvík sumarið 2009 en hann var gerður út af O Jakobssyni ehf. á Dalvík. Upphaflega hét báturinn Bylgja RE 77 og var smíðuð hjá Seiglu ehf. í Reykjavík árið 2003. Árið 2004 fær hann nafnið … Halda áfram að lesa Bjarmi EA 112
Nótt RE 36
2072. Nótt RE 36 ex Dofri SU 500. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Nótt RE 36 kemur hér að landi í Sandgerði fyrr í vikunni en hann hét upphaflega Dofri ÁR 43. Báturinn hefur heitið Nótt RE 36 frá árinu 2018 og er gerður út af samnefndi félagi með heimahöfn í Reykjavík. Báturinn, sem er … Halda áfram að lesa Nótt RE 36
Sindri GK 98
1500. Sindri GK 98 ex Sindri RE 46. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Handfærabáturinn Sindri GK 98 kemur hér að landi í Sandgerði sl. þriðjudag sem er hans heimahöfn. Báturinn var smíðaður fyrir Jón Sigurðsson í Reykjavík árið 1977. Smíðin fór fram hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd og fékk hann nafnið Sindri RE 46. Hann … Halda áfram að lesa Sindri GK 98
Tjúlla GK 29
2595. Tjúlla GK 29 ex Grunnvíkingur HF 163. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Tjúlla GK 29 kemur hér að landi í Sandgerði en myndirnar voru teknar í gærmorgun. Upphaflega hét báturinn Grunnvíkingur HF 163 og var smíðaður hjá Sólplasti í Sandgerði árið 2003. Heimahöfn Hafnarfjörður. Hann hefur heiti Tjúlla GK 29 frá árinu 2015, fyrst … Halda áfram að lesa Tjúlla GK 29
Hermundur og Herborg
6429. Herborg HF 67 ex Eva HF 67. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Einum þeirra strandveiðibáta sem ég myndaði í morgun stýrði Húsvíkingur sem lengi réri með pabba á Kristbjörgu ÞH 44. Hermundur Svansson heitir hann og eftir að hann komst á aldur og hættur á stærri bátunum fékk hann sér trilluhorn og nefndi hana Herborgu. … Halda áfram að lesa Hermundur og Herborg
Garpur og Dettifoss
2018. Garpur RE 148 - Dettifoss í fjarska. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Garpur RE 148 kemur að landi í Sandgerði í morgun. Dettifoss í fjarska á leið sinni til Reykjavíkur. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in … Halda áfram að lesa Garpur og Dettifoss
Ný Cleopatra 31 til Grindavíkur
3019. Research GK 162. Ljósmynd Trefjar 2022. Alexander John Polson útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 31 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Alex verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem er með heimahöfn í Grindavík. Nýi báturinn heitir Research GK 162 og er 9.6m metrar á lengd og mælist 8.5 brúttótonn. Það má … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 31 til Grindavíkur









