Smyrill ÞH 57

6941. Smyrill ÞH 57 ex Hafdís SI 131. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Strandveiðibáturinn Smyrill ÞH 57 kemur hér að landi í dag með skammtinn sinn. Það er Fiskisker ehf., sem gerir bátinn út frá Húsavíkur en hann var keyptur frá Siglufirði haustið 2021. Smyrill ÞH 57 var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar hf. í Hafnarfirði árið 1987. … Halda áfram að lesa Smyrill ÞH 57 →

Björn EA 220

3010. Björn EA 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það var ekki amalegt að fá tækifæri til að mynda Björn EA 220 í kvöldsólinni fyrir stundu, takk fyrir það Siggi og Haukur. Björn er nýjasta bátur Grímseyinga en Heimsskautssport ehf. í Grímsey fékk bátinn afhentan sl. haust frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Heimskautssport ehf. er í … Halda áfram að lesa Björn EA 220 →

Grímsnes GK 555

1849. Grímsnes GK 555 ex Fúsi SH 162. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Grímsnes GK 555 frá Grindavík kemur hér að landi í Njarðvík sumarið 2004 en báturinn var gerður út af samnefndu fyrirtæki. Báturinn heitir Dýrfiskur ÍS 96 í dag og er þjónustubátur við fiskeldi. En upphaflega hét hann Neptúnus NS 8 og var smíðaður … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555 →

Landað í morgunblíðunni

2370. Sigrún Hrönn ÞH 36. - 2783. Ásdís ÞH 136. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Eins og segir hér í færslunni á undan kom grásleppubáturinn Ásdís ÞH 136 með góðan afla til hafnar á Húsavík í gærkveldi. Þegar hafist var handa við að landa úr bátnum í morgun kom að landi, og undir hinn kranann, strandveiðibáturinn … Halda áfram að lesa Landað í morgunblíðunni →

Ásdís ÞH 136

2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það var góður dagur í dag á Ásdísi ÞH 136 sem stundar grásleppuveiðar frá Húsavík. Báturinn kom að landi í kvöld með á sjöunda tonn en verið var að draga í fyrsta skipti þessa vertíðina. Áður höfðu kallarnir stundað grásleppuveiðar á öðrum … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136 →