Snekkjan A og Samskip Hoffell á Eyjafirði

IMO 1012141. A og IMO 9196943. Samskip Hoffell mætast á Eyjafirði. Ljósmynd Örn Stefánsson 2021. Örn Stefánsson tók þessa mynd síðdegis í dag þegar lystisnekkjan A og flutningaskipið Samskip Hoffell mættust á Eyjafirði. Í Fréttablaðinu í dag segir m.a svo frá snekkjunni: Nafn snekkj­unn­ar er A og var henn­i hleypt af stokk­un­um árið 2015. Hún … Halda áfram að lesa Snekkjan A og Samskip Hoffell á Eyjafirði →

Knörrinn kom með Sölku

306. Knörrinn - 1438. Salka GK 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Þann 1. júní 2012 kom Knörrinn með Sölku GK 79 norður til Húsavíkur en Norðursigling hafði þá eignast bátinn. Rúmum fjórum árum síðar hóf hann siglingar á Skjálfanda eftir að hafa verið endurbyggður sem rafknúinn hvalaskoðunarbátur. Salka var smíðuð á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta … Halda áfram að lesa Knörrinn kom með Sölku →

Norðurljósaslippur

Sæborg og Náttfari í Húsavíkurslipp. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessa mynd tók ég á Húsavík í kvöld og sýnir hún hvalaskoðunarbátana Sæborgu og Náttfara í slippnum en þar hafa þeir staðið upp á síðkastið. Lítið annað um hana að segja. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Norðurljósaslippur →

Númi HF 62

1487. Númi HF 62 ex Númi KÓ 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Hvalaskoðunarbáturinn Númi HF 62 kemur hér til hafnar í Reykjavík sumarið 2010 en eins og glöggir síðulesarar sjá er hér um Stykkilshólmssmíði að ræða. Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 brl. bátana sem Skipavík … Halda áfram að lesa Númi HF 62 →

Norðursiglingarflotinn – 2

Bátar Norðursiglingar við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Á þessari mynd sem tekin var í gær gefur að líta átta af tíu bátum Norðursiglingar við bryggju á Húsavík. Þetta eru Garðar, Bjössi Sör og Knörrinn. Skonnorturnar Donna Wood, Ópal, Hildur og Haukur. Og Andavari en Náttfari var við flotbryggju en hann er enn … Halda áfram að lesa Norðursiglingarflotinn – 2 →

Jólaljósin komin upp á Faldinum

1267. Faldur ex Faldur ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Jólaljósin eru komin upp á bátum Gentle Giants á Húsavík og setja svip sinn á höfnina sem og bæinn allan. Um er að ræða þrjá báta, Sylvíu, Aþenu og Fald sem sést á meðfylgjandi mynd. Ef veður helst gott er nokkuð víst að fleiri slíkar … Halda áfram að lesa Jólaljósin komin upp á Faldinum →

Akranes kom til Grindavíkur í gær

2777. Akranes ex Víkingur. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Farþegabáturinn Akranes kom til Grindavíkur í gær og tók Jón Steinar þessar myndir af honum. Akranes var smíðað 1971 og var fyrst notað sem slökkvibátur fyrir sænska herinn. Akranes hét upphaflega Ísafold á íslenskri skipaskrá en það nafn fékk hann árið 2008. Sumarið 2013 var báturinn seldur … Halda áfram að lesa Akranes kom til Grindavíkur í gær →

Gunilla frá Gautaborg

IMO 5239515. Gunilla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Sænska seglskipið Gunilla hefur dólað um Skjálfandaflóa síðan í gær og lá fyrir akkerum í nótt. Hún kom upp að Bökugarðinum eftir hádegi í dag og náði í vistir en sigldi síðan á braut. Hún var byggð sem fragtskip í Oskarshamn í Svíþjóð árið 1941 og notað sem … Halda áfram að lesa Gunilla frá Gautaborg →