Lúxussnekkjan Calypso

IMO: 1006544. Calypso ex Sorimar. Þessi mynd var tekin í morgun þegar lúxussnekkjan Calypso lét úr höfn á Húsavík. Ca­lyp­so, sem kom til Húsavíkur í gærkveldi, siglir undir fána Caymaneyja og er með heimahöfn í Geor­get­own.  Calypso hét Solimar og var smíðuð í Amels í Hollandi árið 2003. Hún er 61,5 metrar að lengd, breidd hennar er … Halda áfram að lesa Lúxussnekkjan Calypso →

Örkin á siglingu

1420. Örkin ex Keilir SI 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Örkin fór í stutta reynslusiglingu síðdegis í dag og var ekki annað að heyra þegar í land var komið að allt hafi virkað vel. Örkin, sem hét áður Keilir SI 145, er í eigu Gunnars Júlíussonar á Siglufirði og var smíðuð í Skipavík í Stykkishólmi … Halda áfram að lesa Örkin á siglingu →

Skonnortan Ópal á Skjálfandaflóa

2851. Ópal á Skjálfandaflóa í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skonnortan Ópal kom til Húsavíkur í kvöld og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Skipið var smíðað af skipasmíðastöðinni Bodenwerft í Damgarten, Þýskalandi árið 1951 sem togari og var við veiðar á Eystrarsalti, í Norðursjó og Barentshafi.  Á 8 árum (1973-1981) var Ópal breytt í … Halda áfram að lesa Skonnortan Ópal á Skjálfandaflóa →

Snorri á leið í slipp

950. Snorri ex Fríða. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Hér má sjá hvalaskoðunarbátinn Snorra EA 317 frá Dalvík á leið upp í slippinn á Húsavík sumarið 2009. Norðursigling hafði hann þá á leigu en í dag heitir báturinn Lundi RE 20. Báturinn var smíðaður 1964 í skipasmíðastöð KEA fyrir Hríseyinga og hét þá Farsæll II EA … Halda áfram að lesa Snorri á leið í slipp →

Norræna sullast áfram í ssv 25 m/s

IMO 9227390. Norræna. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Færeyska ferjan Norræna og togarinn Ottó N Þorláksson VE 5 mættust úti fyrir Austurlandi nú síðdegis og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir sem hér birtast. "Norræna siglir hér á 18 sjm. ferð framan við okkur austur af Seyðisfirði, við erum á bullandi lensi í ssv 25 m/s" skrifaði … Halda áfram að lesa Norræna sullast áfram í ssv 25 m/s →

Flatey kemur úr Flatey

7405. Flatey ÞH ex Fugl. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flatey er skemmtibátur í eigu Ingvars Sveinbjörnssonar á Húsavík og tók ég þessar myndir nú áðan þegar báturinn kom til hafnar á Húsavík. Ingvar og hans fjölskylda eiga húseignir í Flatey og nota bátinn til siglinga á milli Húsavíkur og eyjunnar. Þaðan var hann að koma … Halda áfram að lesa Flatey kemur úr Flatey →

Herjólfur hinn nýi

2941. Herjólfur. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í dag þegar Herjólfur kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Þetta eru fyrstu myndirnar sem birtast af þessu skipi hér á síðunni og kominn tími til því hann kom til landsins í júní sl. Herjólfur er 3,270 BT að stærð og skráð lengd hans er … Halda áfram að lesa Herjólfur hinn nýi →

Ocean Endavour á Húsavík

Ocean Endavour við Bökugarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Farþegaskipið Ocean Endavour var á Húsavík í gær og tók Gaukur Hjartarson þessa mynd af skipinu við Bökugarðinn. Ocean Endavour siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau. Það var smíðað árið 1982 og mælist 12,907 GT að stærð. Lengd skipsins er 137,1 metrar og breidd þess … Halda áfram að lesa Ocean Endavour á Húsavík →