Nýi Christian í Grótinum

IMO 9915430. Christian í Grótinum KG 690. Ljósmynd vonin.com 2022. Nýr Christian í Grótinum KG 690 er kominn í flota Færeyinga og er þetta einkar glæsilegt skip. Þessi mynd var tekin þegar skipið kom til Fuglafjarðar í dag að sækja veiðarfæri hjá Vónin P/F en myndin er fengin af Fésbókarsíðu fyrirtækisins og birt með leyfi … Halda áfram að lesa Nýi Christian í Grótinum →

Høgaberg FD-110 í Vestmannaeyjum

IMO 9686596. Høgaberg FD-110 ex Torbas. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2022. Færeyska uppsjávarveiðiskipið Høgaberg FD-110 kom til Vestmannaeyja undir kvöld og tók Tryggvi Sigurðsson þessa mynd. Skipið er í eigu útgerðarfélagsins Framherja og er með heimahöfn í Fuglafirði. Høgaberg hét upphaflega Torbas SF-4-V og var smíðað árið 2015. Það var selt til Færeyja árið 2017 og … Halda áfram að lesa Høgaberg FD-110 í Vestmannaeyjum →

Markus GR-6-84 á toginu

IMO: 9826706. Markus GR-6-84. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Hér koma sjóðheitar myndir sem Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók í kvöld og sýnir grænlenska rækjutogaranum Markus GR-6-84. Þarna er hann að veiðum við A-Grænland og eins og sjá má í blíðskaparveðri. Reyndar fyrsti dagurinn í yfirstandandi veiðferð hjá Reval Viking sem það er logn og … Halda áfram að lesa Markus GR-6-84 á toginu →

Ocean Tiger á rækjuveiðum í ísnum við A-Grænland

IMO 9136383. Ocean Tiger R 38. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjutogaranum Reval Viking tók þessa mynd fyrir skömmu af Ocean Tiger R 38 þar sem þeir voru að veiðum í ísnum við Austur-Grænland. Ocean Tiger er í eigu Ocean Prawn A/S og var smíðaður árið 1997 í Noregi. Togarinn er með … Halda áfram að lesa Ocean Tiger á rækjuveiðum í ísnum við A-Grænland →

Sørfold F-555-M í Reykjavík 2002

IMO 9251901. Sørfold F-555-M. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Hér birtast myndir af norska loðnuskipinu Sørfold F-555-M sem teknar voru í Reykjavík í júnímánuði árið 2002. Skipið heitir í dag Nordfisk N-1-B og birtist hér á síðunni fyrr í dag. Skipið var smíðað árið 2002 og er því glænýtt þegar myndirnar voru teknar. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Sørfold F-555-M í Reykjavík 2002 →

Nordfisk N-1-B á Fáskrúðsfirði

IMO 9251901. Nordfisk N-1-B ex Sørfold. Ljósmynd Þorgeir Baldursson 2022. Norska loðnuskipið Nordfisk N-1-B er hér á Fáskrúðsfirði en myndina tók Þorgeir Baldursson í gær. Skipið er smíðað árið 2002 og hét upphaflega Sørfold. Það er með heimahöfn í Bodø og hefur heitið Nordfisk frá árinu 2004. Nordfisk er 64 metrar að lengd, 14 metra … Halda áfram að lesa Nordfisk N-1-B á Fáskrúðsfirði →

Ný Cleopatra 36B til Vardø í Noregi

Østkapp TF-336-V. Ljósmynd Trefjar 2022. Østkapp heitir nýr beitingavélabátur sem Brynjar Bangsund útgerðarmaður og skipstjóri frá Vardø fékk afnetan á dögunum frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Brynjar verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem er af gerðinni Cleopatra 36B. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 18 brúttótonn að stærð. Aðalvél bátsins er af gerðinni … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36B til Vardø í Noregi →

Ilivleq að veiðum

IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Grænlenski frystitogarinn Ilivleq GR-2-201 er hér að makrílveðum í fyrrasumar en myndirnar tók Hólmgeir Austfjörð. Togarinn er í eigu Arctic Prime Fisheries ApS á Grænlandi en hann var smíðaður í spænsku skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Gijon á Norður-Spáni og afhentur vorið 2020. IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201. … Halda áfram að lesa Ilivleq að veiðum →

Gøtunes FD 950

IMO: 9809265. Gøtunes FD 950 ex Gitte Henning I FD 950. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir af nóta- og togskipinu Gøtunesi FD 950 frá Færeyjum sl. sumar en þá var skipið á makrílveiðum. Gøtunes, sem hefur heimahöfn í Gøtu, hét upphaflega Gitte Henning S 349 með heimahöfn í Skagen í Danmörku. … Halda áfram að lesa Gøtunes FD 950 →

Rav TR-4-O á Fáskrúðsfirði

IMO 9816816. Rav TR-4-O. Ljósmynd Óðinn Magnason 2022. Norska loðnuskipið Rav frá Þrándheimi liggur hér við bryggju á Fáskrúðsfirði í dag. Einungis 30 norsk skip mega vera að veiðum í einu og bíða hin færis við bryggju á meðan. Rav er glæsilegt skip, 79,75 metrar að lengd og 15,50 metrar að breidd. Það var afhent … Halda áfram að lesa Rav TR-4-O á Fáskrúðsfirði →