895. Vingþór ÞH 166 ex Vingþór NS 341. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1980. Vingþór ÞH 166 liggur hér við bryggju á Siglufirði vorið 1980 en hans heimahöfn var þá á Kópaskeri. Vingþór NS 341 hét hann upphaflega og var í eigu Seyðisfjarðarkaupstaðar. Báturinn var 15 brl. að stærð, smíðaður í Danmörku árið 1934 og kom til … Halda áfram að lesa Vingþór ÞH 166
Flokkur: Bátar
Ársæll ÁR 66
1014. Ársæll ÁR 66 ex Dúi ÍS 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Ársæll ÁR 66 kom til Húsavíkur 5. mars árið 2012 þeirra erinda að láta gera við rækjutrollið. Báturinn hét upphaflega Ársæll Sigurðsson GK 320 og var með heimahöfn í Hafnarfirði. Síðar hét hann lengi vel Arney KE 50 frá Keflavík. Því næst Auðunn … Halda áfram að lesa Ársæll ÁR 66
Glaður HU 67 á toginu
12. Glaður HU 67 ex Guðmundur Einarsson ÍS 28. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Glaður HU 67 sést hér á togi á rækjuslóðinni úti fyrir Norðurlandi, sennilega á árunum1988-1989. Hann var gerður úr frá Hvammstanga og var í eigu Meleyrar hf. sem keypti bátinn frá Ísafirði árið 1987. Upphaflega hét báturinn Árni Magnússon GK 5 og var … Halda áfram að lesa Glaður HU 67 á toginu
Báðir smíðaðir fyrir Breiðfirðinga
1424. Þórsnes II SH 109 - 260. Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér gefur að líta tvo báta sem smíðaðir voru á sínum tíma fyrir útgerðir við Breiðafjörð en eru hér við bryggju á Húsavík. Nánar tiltekið á Sjómannadaginn árið 2007. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 var smíðaður Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá … Halda áfram að lesa Báðir smíðaðir fyrir Breiðfirðinga
Sævík GK 257
971. Sævík GK 257 ex Aðalvík KE 95. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar þann 18. ágúst árið 2003 en þá kom línubáturinn Sævík GK 257 til löndunar á Húsavík. Sævík var gerð út af Vísi hf. í Grindavík sem hafði keypt bátinn árið 1998 en þá hét hann Aðalvík … Halda áfram að lesa Sævík GK 257
Albatros GK 60
1052. Albatros GK 60 ex Vinur ÍS 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Albatros GK 60 var gerður út frá Grindavík á árunum 1997-2004 en Fiskanes hf. keypti hann frá Bolungarvík þangað sem hann var aftur seldur og fékk nafnið Einar Hálfdáns ÍS 11. Þegar skipið, sem var 257 brl. að stærð, var keypt frá Bolungarvík … Halda áfram að lesa Albatros GK 60
Siglufjörður í sumar
Siglufjörður 10. ágúst 2021. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd sem sýnir hluta Siglufjarðar var tekin 10. ágúst í sumar og það var ansi líflegt við höfnina þann dag. Sem og marga aðra daga sumarsins en á myndinni má sjá að löndun stendur m.a yfir úr Huldu GK 17 og Margréti GK 33. Með því að … Halda áfram að lesa Siglufjörður í sumar
Sighvatur GK 57
975. Sighvatur GK 57 ex Bjartur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sighvatur GK 57 lætur hér úr höfn í Grindavík um árið, þarna var búið að skutlengja bátinn og skipta um brú frá því að þessi mynd var tekin. Sighvatur, sem gerður var út af Vísi hf., var einn 18 báta sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57
Jökull ÞH 299
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það er nokkuð um liðið síðan Jökull ÞH 299 hefur birst hér á síðunni og því tilvalið að mynda hann í dag en hann var eitthvað að snúast framan við höfnina á Húsavík. Línu- og netaskipið Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299
Þórir í Reykjavíkurhöfn
91. Þórir SF 77 ex Helga RE 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þórir frá Hornafirði er hér í Reykjavíkurhöfn um árið, annað hvort að fara upp í slipp eða koma niður. Þinganes ehf. keypti Þóri SF 77 af Ingimundi h.f í Reykjavík en hann hét Helga RE 49 og var mikið aflaskip. Þórir var smíðaður í … Halda áfram að lesa Þórir í Reykjavíkurhöfn









