189. Arnþór EA 16 ex Valdimar Sveinsson VE 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Arnþór EA 16 er þarna í skverun um árið í Slippstöðinni á Akureyri. Sandblásinn og síðan fengið bláa litinn. Liggur utan á Heimaey VE 1. Arnþór EA 16 hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var smíðaður fyrir Skarðsvík hf. á Hellissandi í Austur-Þýskalandi … Halda áfram að lesa Arnþór í skverun um árið
Flokkur: Bátar
Eyrún EA 155
1094. Eyrún EA 155 ex Frosti II ÞH 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyrún EA 155, sem hér kemur til hafnar í Þorlákshöfn, var gerð út frá Hrísey á fyrrihluta tíunda áratugs síðustu aldar. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. Hafnarfirði og lauk smíði hans árið 1969 en þá voru sjö ár síðan smíðin hófst. … Halda áfram að lesa Eyrún EA 155
Hamrasvanur
238. Hamrasvanur SH 201 ex Hamrasvanur SH 211. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson Hamrasvanur SH 201 hefur áður birst hér á síðunni en þó ekki þessi mynd sem Hreiðar Ogeirsson tók í Breiðafirði. Hamrasvanur SH 201 var smíðaður í Molde í Noregi árið 1964 og hét upphaflega Eldborg GK 13. Eldborg GK 13 var smíðuð fyrir útgerðarfélagið … Halda áfram að lesa Hamrasvanur
Vestri BA 63 á Húsavík
182. Vestri BA 63 ex Grettir SH 104. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Rækjubáturinn Vestri BA 63 kom til Húsavíkur fyrir stundu en stoppaði stutt við. Hann er í þessum skrifuðu orðum nýfarinn úr höfn. Vestri hét upphaflega Sigurður Jónsson SU 150 og er gerður út af Vestra ehf. á Patresfirði. Haukur Sigtryggur sendi miða um … Halda áfram að lesa Vestri BA 63 á Húsavík
Spánverjar vilja smíða nýtt skip fyrir Hafró
Í dag 1. október, voru opnuð hjá Ríkiskaupum tilboð í smíði nýs rannsóknaskips fyrir Hafrannsóknastofnun. Þrjú tilboð komu í smíði skipsins og komu þau öll frá spænskum skipasmíðastöðvum. Í tilkynningu segir að á næstu vikum verði farið yfir tilboðin, þau metin og í framhaldi þess hefjast viðræður við þá sem buðu í verkið.
Dreki HF 36
27. Dreki HF 36 ex Sigurjón GK 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Tappatogarinn Dreki HF 36 liggur hér við bryggju í Hafnarfirði en upphaflega hét hann Björgvin EA 311. Hann var einn 12 tapatogaranna sem smíðaðir voru í Austur-Þýskalandi fyrir Íslendinga. Dreki var seldur norður á Kópasker og kom til heimahafnar vorið 1987. Þá var búið … Halda áfram að lesa Dreki HF 36
Frár á toginu
1199. Frár VE 78 ex Krossanes SU 5. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Á togi austur á Vík skrifar ljósmyndarinn Tryggvi Sigurðsson við þessa mynd sem sýnir togbátinn Frá VE 78. Téður Tryggvu var einmitt vélstjóri þar um borð. Frár VE 78 var smíðaður í Noregi árið 1969 en keyptur hingað til lands af Kirkjukletti hf. í … Halda áfram að lesa Frár á toginu
Haförn ÞH 26
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd var tekin þegar dragnótabáturinn Haförn ÞH 26 kom til hafnar á Húsavík í dag. Hér má lesa um bátinn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Haförn ÞH 26
Votaberg SU 10
962. Votaberg SU 10 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Votaberg SU 10 frá Eskifirði landaði oft á Húsavík þegar úthafsrækjuveiðin var sem mest en skipið var gert út af Eskju á Eskifirði. Upphaflega hét skipið Óskar Halldórsson RE 157 og var smíðaður í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík. Lesa meira hér.. … Halda áfram að lesa Votaberg SU 10
Aðalbjörg RE 5
1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Aðalbjörg RE 5 kom til hafnar í Reykjavík nú undir kvöld og voru þessar myndir teknar þá. Aðalbjörg er á dragnót sem fyrr en þessa dagana er hún við veiðar í Faxaflóa. Aðalbjörg RE 5 var smíðuð hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987 og lengd árið 1995. Báturinn … Halda áfram að lesa Aðalbjörg RE 5









