Sæmundur HF 85

638. Sæmundur HF 85 ex Sæmundur Sigurðsson HF 85. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1987. Sæmundur HF 85 dregur hér netin í Breiðafirði á vetrarvertíðinni 1987 en myndina tók Hreiðar Olgeirsson. Sæmundur HF 85 hét áður Sæmundur Sigurðsson HF 85 og var í eigu Eiríks Ólafssonar í Hafnarfirði. Á vefnum aba.is segir að báturinn var smíðaður úr … Halda áfram að lesa Sæmundur HF 85

Nýja Vestmannaey VE 54 í prufusiglingu

2954. Vestmannaey VE 54 í reynslusiglingu. Ljósmynd Vard 2019. Hin nýja Vestmannaey, sem er í smíðum hjá skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi, fór í prufusiglingu hinn 27. júní sl..  Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að hinn 5. júlí hafi síðan veiðarfæraprófanir fraið fra en þá var allur búnaður sem tengist veiðarfærum um borð í skipinu … Halda áfram að lesa Nýja Vestmannaey VE 54 í prufusiglingu

Grundfirðingur hefur fengið nafnið Langanes

1202. Grundfirðingur SH 24 nú Langanes GK 525. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Grundfirðingur SH 24 hefur fengið nafnið Langanes GK 525 samkvæmt skipaskrá Samgöngustofu. Eigandi er Grímsnes ehf. og heimahöfnin Njarðvík. Báturinn hét upphaflega Þorlákur ÁR og  var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn h/f í Þorlákshöfn.  Sögu hans má lesa hér Báturinn var … Halda áfram að lesa Grundfirðingur hefur fengið nafnið Langanes

Ólafur Magnússon HF 77

711. Ólafur Magnússon HF 77 ex Ólafur Magnússon VE 16. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Ólafur Magnússon HF 77 kemur hér til hafnar í Sandgerði á vetrarvertíðinni árið 2002. Ólafur Magnússon var smíðaður í Skipasmíðastöð Njarðvíkur árið 1956 og var upphaflega KE 25. Smíðaður eftir teikningu Egils Þorfinssonar fyrir Albert Ólafsson ofl. í Keflavík. Svo sagði … Halda áfram að lesa Ólafur Magnússon HF 77

Hraunsvík GK 68

727. Hraunsvík GK 68 ex Gissur ÁR6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Hraunsvík GK 68 að koma til hafnar í Grindavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Hraunsvík hét upphaflega Akurey SF 52 og var smíðuð í Danmörku 1956. Svo sagði frá í Morgunblaðinu 12. apríl 1956: Tveir nýir bátar komu til Hornafjarðar í gær. Eru … Halda áfram að lesa Hraunsvík GK 68

María Júlía BA 36

151. María Júlía BA 36 ex björgunar- og varðskipið María Júlía. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. María Júlía BA 36 við bryggju á Tálknafirði um árið en Hreiðar Olgeirsson tók myndina. María Júlía er samofin skipasögu íslendinga og er enn til umræðu manna á milli en hún hefur lengi legið í höfn fyrir vestan. Skipið er í … Halda áfram að lesa María Júlía BA 36

Jón Júlí BA 157

610. Jón Júlí BA 157 ex Jón Júlí HU. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Jón Júlí BA 157 við bryggju á Tálknafirði fyrir margt löngu síðan en myndina tók Hreiðar Olgeirsson. Báturinn var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1955 og fékk nafnið Ingólfur SF 53. Mældist 39 brl. að stærð með Caterpillar 170 hestafla aðalvél. Eigandi Rafnkell Þorleifsson Hornafirði. Báturinn var … Halda áfram að lesa Jón Júlí BA 157

Öðluðust nýjan tilgang í hvalaskoðun

1475. Sæborg og 1470. Salka sigla inn og út. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Í vetur birtist í 200 mílum, sérblaði Morgunblaðsins um sjávarútveg, myndir af hvalaskoðunarbáum frá Húsavík. Með fylgdi texti sem ég setti saman um bátana en um var að ræða fiskibáta sem smíðaðir voru á Íslandi en þeir eru ellefu talsins. Allt eru … Halda áfram að lesa Öðluðust nýjan tilgang í hvalaskoðun