120. Kambaröst SU 200 ex Erling KE 140. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Kambaröst SU 200 stundaði úthafsrækjuveiðar frá Húsavík um árið og hér er hún að koma til hafnar í maímánuði árið 2004. Báturinn hét upphaflega Sangolt og var smíðaður árið 1957 í Avaldsnes í Noregi. Hann var síðan keyptur til landsins árið 1960 af … Halda áfram að lesa Kambaröst SU 200
Flokkur: Bátar
Vörður ÞH 44
2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Freyr Njálsson 2019. Það er að koma nokkuð góð mynd á Vörð og Áskel þar sem þeir eru í smíðum í Noregi, Vörður þó skrefinu á undan. Freyr Njálsson tók þessar myndir á dögunum sem sýna stöðuna. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Freyr Njálsson 2019. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44
Örvar BA 14 við bryggju í Reykjavík
1136. Örvar BA 14 ex Örvar HU 21. Ljósmynd Leifur Hákonarson 1974. Hér liggur Örvar BA 14 við bryggju í Reykjavík sumarið 1974. Greinilega verið að skvera bátinn sem keyptur var til Patreksfjarðar frá Skagaströnd veturinn áður. Það var Hraðfrystihúsið Skjöldur h/f sem keypti Örvar og kom hann til nýrrar heimahafnar á Patreksfirði í janúar … Halda áfram að lesa Örvar BA 14 við bryggju í Reykjavík
Grundfirðingur SH 24 seldur til Suðurnesja
1202. Grundfirðingur SH 24 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Grundfirðingur SH 24 hefur verið seldur til Suðurnesja og verður gerður út til netaveiða. Báturinn hét upphaflega Þorlákur ÁR 5 og var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn h/f í Þorlákshöfn. Smíðanúmer 18 frá þeim og afhentur í upphafi árs. Árið 1977 … Halda áfram að lesa Grundfirðingur SH 24 seldur til Suðurnesja
Geiri Péturs ÞH 344 í slipp á Húsavík
1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1985. Geiri Péturs ÞH 344 er á þessari mynd í slippnum á Húsavík sumarið 1985. Myndin er tekin af Beinabakkanum í kvöldsólinni. Geiri Péturs ÞH 344 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri 1971 eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsona og hét upphaflega Sigurbergur GK … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344 í slipp á Húsavík
Aldan SI 85
411. Aldan SI 85 ex Brynja BA 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aldan SI 85 er hér við bryggju á Siglufirði um árið en þaðan var báturinn gerður út á árunum 1972-1989. Myndin var tekin 1988 eða 1989. Báturinn hét upphaflega Faxi EA 11 og var smíðaður á Akureyri árið 1962. Dagur greindi svo frá miðvikudaginn … Halda áfram að lesa Aldan SI 85
Páll Jónsson GK 357
1030. Páll Jónsson GK 357 ex Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Páll Jónsson GK hefur fengið nýtt númer en 7. júní sl. varð hann GK 357. Nýi Páll Jónsson, sem er í smíðum í Póllandi, verður GK 7 en hann er væntanlegur til landsins í lok sumars og leysir þann gamla af … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 357
Þórir SF 77 myndaður úr lofti
2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Þórir SF 77 kom til hafnar í Grindavík og Jón Steinar sendi drónann á loft og árangur að venju góður. Þar með eru komnar drónamyndir af systurskipunum tveim frá Hornafirði eftir breytingar. 2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Bátarnir eru báðir við humarveiðar þessa dagana. … Halda áfram að lesa Þórir SF 77 myndaður úr lofti
Þristur BA 36
1527. Þristur BA 36 ex Steinbjörg BA 273. Ljósmynd Þór Jónsson 2018. Þristur BA 36 kemur að landi á Djúpavogi á þessari mynd Þórs Jónssonar frá árinu 2018. Samkvæmt vef Fiskistofu er Hafnarnes Ver ehf. í Þorlákshöfn eigandi bátsins en heimahöfn hans er á Tálknafirði. Hann er gerður út til sæbjúgnaveiða. Báturinn hét upphaflega Gullfaxi … Halda áfram að lesa Þristur BA 36
Skinney SF 20 mynduð úr lofti
2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir af Skinney SF 20 á drónann sinn í vikunni þegar hún var á útleið frá Grindavík. 2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Jón Steinar 2019. 2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Skinney SF 20 mynduð úr lofti









