Jósef Geir ÁR 36

1266. Jósef Geir ÁR 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jósef Geir ÁR 36, sem hér sést í slipp í Hafnarfirði, var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1972. Jósef Geir ÁR 36 var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. sem gerði bátinn út alla tíð. Báturinn var 47 brl. að stærð með heimahöfn á Stokkseyri.  Jósef Geir … Halda áfram að lesa Jósef Geir ÁR 36

Vestmannaey VE 54 kom til heimahafnar í dag

Fjórar eyjar. Ljósmynd Jói Myndó 2019. Ný Vestmanney VE 54 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í dag í fylgd Bergeyjar VE 544 og Vestmannaeyjar VE 444. Jói Myndó í Vestmannayjum sendi síðunni þessar glæsilegu myndir en móttökuathöfn verður í haust þegar ný Bergey VE, systurskip Vestmannaeyjar, kemur til landsins. 2954. Vestmannaey VE 54 og 2744. … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom til heimahafnar í dag

Örfirisey með metafla

2170. Örfirisey RE ex Polarborg I. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogarinn Örfirisey RE 4 kom á dögunum til hafnar í Reykjavík eftir veiðiferð í Barentshafið og var aflinn mjög góður. Í frétt á heimasíðu HB Granda segir svo frá: ,Þetta var mjög góður túr og ég held að ég fari rétt með þegar ég segi … Halda áfram að lesa Örfirisey með metafla

Eyrún ÁR 66

1315. Eyrún ÁR 66 ex Eyrún GK 157.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyrún ÁR 66 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Hríseyinga og hét Eyrún EA 157. Nýsmíði nr. 44 hjá stöðinni og var báturinn afhentur 11. júlí árið 1973. Báturinn var 24 brl. að stærð og smíðaður úr eik. Eigendur voru Árni Kristinsson skipstjóri, Mikael … Halda áfram að lesa Eyrún ÁR 66

Sæljón RE 19

1499. Sæljón RE 19 ex Flosi ÍS 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæljón RE 19 kemur til hafnar í Reykjavíkum miðjan níunda áatug síðustu aldar, sennilega haustið 1985. Báturinn hét upphaflega Flosi ÍS 15 og er 29 brl. að stærð. Flosi var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1977. Báturinn, sem smíðaður var fyrir … Halda áfram að lesa Sæljón RE 19

Þorleifur EA 88

1105. Þorleifur EA 88 ex Guðrún Jónsdóttir SI 155.Ljósmynd Hafór Hreiðarsson. Þorleifur EA 88 úr Grímsey er þarna nýbúinn að taka rækjutrollið um borð á Húsavík eitt sumarkvöldið seint á níunda áratug síðustu aldar. Þorleifur EA 88 hét upphaflega Jón Helgason ÁR 12 og var 50 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir Fræg hf. … Halda áfram að lesa Þorleifur EA 88

Hringur SH 153 á Vestfjarðarmiðum

2685. Hringur SH 153 ex Marina Polaris. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hringur SH 153 er á þessum myndum við veiðar á Vestfjarðarmiðum á dögunum en myndirnar tók Hólmgeir Austfjörð. 2685. Hringur SH 153 ex Marina Polaris. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hringur SH 153 var keyptur til landsins frá frá Fraserburgh í Skotlandi og kom hann til heimahafnar … Halda áfram að lesa Hringur SH 153 á Vestfjarðarmiðum