Þorlákshöfn í dag

Skip við bryggju í Þorlákshöfn í dag. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Hér koma nokkrar myndir sem Gundi tók í Þorlákshöfn í dag en þar liggja bátar inni vegna brælu. Skip við bryggju í Þorlákshöfn í dag. Ljósmyndir Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri … Halda áfram að lesa Þorlákshöfn í dag →

Barðinn GK 475

160. Barðinn GK 475 ex Jón Sturlaugsson ÁR 7. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Þorgeir Baldursson tók þessa mynd af Barðanum GK 475 þegar síldveiðar voru stundaðar inn á fjörðum austanlands. Sennilega 1986. Barðinn GK 475 hét upphaflega Ólafur Bekkur ÓF 2 og var smíðaður í Risør í Noregi árið 1960 fyrir Bæjarsjóð Ólafsfjarðar. Selt hlutafélaginu Þresti … Halda áfram að lesa Barðinn GK 475 →

Héðinn ÞH 57

1006. Héðinn ÞH 57 kemur nýr til Húsavíkur. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1966. Hér birtast nú nokkrar myndir sem Hreiðar Olgeirsson tók í júnímánuði 1966 þegar Héðinn ÞH 57 kom nýr til Húsavíkur. Íslendingur blað Sjálfstæðismanna í Norðurlandskjördæmi eystra birti eftirfarandi frétt 9 júní 1966: Í fyrradag bættist Húsvíkingum nýr stálbátur í flotann, Héðinn ÞH 57, … Halda áfram að lesa Héðinn ÞH 57 →

Sæbjörg ST 7 á Húsavík

554. Sæbjörg ST 7 ex Fanney SH 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Hér er verið að landa rækju á Húsavík úr Sæbjörgu ST 7 frá Hólmavík sumarið 1993. Sæbjörg ST 7 hét upphaflega Hávarður ÍS 160 og var smíðaður í Danmörku árið 1959 fyrir Ísver h/f á Suðureyri við Súgandafjörð. Lesa má færslu um bátinn, … Halda áfram að lesa Sæbjörg ST 7 á Húsavík →

Tveir Reykjavíkurbátar á síldarmiðunum

972. Þorsteinn RE 303 - 1002. Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér má sjá tvo síldarbáta sem höfðu Reykjavík sem heimahöfn þegar myndin var tekin og annar þeirra miklu mun lengur. Þriðji báturinn sem er lengst tv. gæti hafa verið í eigu Haraldar Böðvarssonar & co á Akranesi, Höfrungur III ? Sá fjórði … Halda áfram að lesa Tveir Reykjavíkurbátar á síldarmiðunum →

Nótaviðgerð hjá Keflvíkingi

Gert við nótina hjá Keflvíkingi KE 100 í Grindavík. Ljósmynd Gunnar Hallgrímsson. Þessar myndir tók móðurbróðir minn Gunnar Hallgrímsson um árið þegar hann var skipverji á loðnubátnum Keflvíkingi KE 100. Þarna hafa kallarnir þurft að gera við loðnunótina eftir löndun en ég hygg að þetta sé á vormánuðum árið 1973. Amk. má sjá í Gjafar … Halda áfram að lesa Nótaviðgerð hjá Keflvíkingi →

Þinganes á Selvogsbanka

2970. Þinganes SF 25. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson skipverji á Ljósafelli SU 70 tók þessar myndir í gær af Þinganesinu nýja á Selvogsbanka. Ljósafellið var nýlagt af stað til löndunar í Þorlákshöfn og Þinganesið kom þangað rétt á eftir þeim. 2970. Þinganes SF 25. Ljósmyndir Þór Jónsson 2020. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Þinganes á Selvogsbanka →