Héðinn ÞH 57

1006. Héðinn ÞH 57 kemur nýr til Húsavíkur. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1966. Hér birtast nú nokkrar myndir sem Hreiðar Olgeirsson tók í júnímánuði 1966 þegar Héðinn ÞH 57 kom nýr til Húsavíkur. Íslendingur blað Sjálfstæðismanna í Norðurlandskjördæmi eystra birti eftirfarandi frétt 9 júní 1966: Í fyrradag bættist Húsvíkingum nýr stálbátur í flotann, Héðinn ÞH 57, … Halda áfram að lesa Héðinn ÞH 57 →

Sæbjörg ST 7 á Húsavík

554. Sæbjörg ST 7 ex Fanney SH 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Hér er verið að landa rækju á Húsavík úr Sæbjörgu ST 7 frá Hólmavík sumarið 1993. Sæbjörg ST 7 hét upphaflega Hávarður ÍS 160 og var smíðaður í Danmörku árið 1959 fyrir Ísver h/f á Suðureyri við Súgandafjörð. Lesa má færslu um bátinn, … Halda áfram að lesa Sæbjörg ST 7 á Húsavík →

Tveir Reykjavíkurbátar á síldarmiðunum

972. Þorsteinn RE 303 - 1002. Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér má sjá tvo síldarbáta sem höfðu Reykjavík sem heimahöfn þegar myndin var tekin og annar þeirra miklu mun lengur. Þriðji báturinn sem er lengst tv. gæti hafa verið í eigu Haraldar Böðvarssonar & co á Akranesi, Höfrungur III ? Sá fjórði … Halda áfram að lesa Tveir Reykjavíkurbátar á síldarmiðunum →

Nótaviðgerð hjá Keflvíkingi

Gert við nótina hjá Keflvíkingi KE 100 í Grindavík. Ljósmynd Gunnar Hallgrímsson. Þessar myndir tók móðurbróðir minn Gunnar Hallgrímsson um árið þegar hann var skipverji á loðnubátnum Keflvíkingi KE 100. Þarna hafa kallarnir þurft að gera við loðnunótina eftir löndun en ég hygg að þetta sé á vormánuðum árið 1973. Amk. má sjá í Gjafar … Halda áfram að lesa Nótaviðgerð hjá Keflvíkingi →

Þinganes á Selvogsbanka

2970. Þinganes SF 25. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson skipverji á Ljósafelli SU 70 tók þessar myndir í gær af Þinganesinu nýja á Selvogsbanka. Ljósafellið var nýlagt af stað til löndunar í Þorlákshöfn og Þinganesið kom þangað rétt á eftir þeim. 2970. Þinganes SF 25. Ljósmyndir Þór Jónsson 2020. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Þinganes á Selvogsbanka →

Geiri Péturs ÞH 344

1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Geiri Péturs ÞH 344 á siglingu á Breiðafirði á vetrarvertíðinni 1982. Geiri Péturs var gerður út af Korra h/f á Húsavík en lagði upp hjá fiskverkunninni Hróa í Óafsvík á meðan verið var við veiðar á Breiðafirði. Geiri Péturs ÞH 344 var … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344 →

Kristbjörg II ÞH 244

1009. Kristbjörg II ÞH 244 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1992. Hér koma myndir sem ég tók af Kristbjörgu II ÞH 244 koma til hafnar á Húsavík eftir línuróður. Báturinn hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í Noregi. Sóley … Halda áfram að lesa Kristbjörg II ÞH 244 →