Geir ÞH 150 frá Þórshöfn

2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Geir ÞH 150 var smíðaður fyrir Geir ehf. á Þórshöfn í Ósey í Hafnarfirði árið 2000 og kom fyrsta skipti til heimahafnar í septembermánuði þar ár. Í Morgunblaðinu þann 21. september árið 2000 mátti lesa eftirfarandi frétt frá fréttaritara blaðsins á Þórshöfn: Nýr bátur bættist í flotann … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150 frá Þórshöfn →

Sandafell HF 82

1812. Sandafell HF 82. Ljósmynd Hörður Harðarson. Sandafell HF 82 var smíðað í Póllandi fyrir Hvamsfell hf. í Hafnarfirði og kom til landsins sumarið 1988. Svo segir frá í 9. tbl. Ægis það ár: 20. júlí sl. kom nýtt stálfiskiskip til Hafnarfjarðar, m/s Sandafell HF 82. Skip þetta er smíðað hjá skipa smíðastöðinni Stocznia Wisla … Halda áfram að lesa Sandafell HF 82 →

Aðalbjörg II RE 236

1269. Aðalbjörg II RE 236 ex Gulltoppur ÁR 321. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Útgerðarfélagið Aðalbjörg s/f í Reykjavík keypti Gulltopp ÁR 321 í sumarbyrjun 1987 og nefndi Aðalbjörgu II RE 236. Báturinn hét upphaflega Borgþór GK 100 eins og áður hefur komið fram á síðunni og var smíðaður í Bátalóni árið 1972. Meðan báturinn var í eigu Aðalbjargar … Halda áfram að lesa Aðalbjörg II RE 236 →

Klettsvík VE 127

27. Klettsvík VE 127 ex Árni á Bakka ÞH 380. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Klettsvík VE 127, sem áður hét Árni á Bakka ÞH 380, var einn tappatogaranna 12 og hét upphaflega Björgvin EA 311. Í Morgunblaðinu 20 desember 1989 segir svo frá: EYJAFLOTINN stækkar enn. Fyrir skömmu bættist Klettsvík VE í Eyjaflotann er hún kom til … Halda áfram að lesa Klettsvík VE 127 →

Sveinbjörn Jakobsson á Ísafirði

260. Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Heiðar Kristinsson 2006. Rakst á þessa mynd á Gömul íslensk skip og fékk leyfi ljósmyndarans, Heiðars Kristinssonar, til að birta hana hér. Þarna er Sveinbjörn Jakobsson SH 10 að láta úr höfn á Ísafirði áleiðis til Húsavíkur en þangað hafi báturinn verið seldur. Í brúnni er Einar Ófeigur Magnússon … Halda áfram að lesa Sveinbjörn Jakobsson á Ísafirði →

Gulltoppur ÁR 321

1269. Gulltoppur ÁR 321 ex Stakkavík ÁR 107. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Gulltoppur ÁR 321 kemur hér til hafnar í Ólafsvík vorið 1987 en Sveinn S. Steinarsson í Þorláksshöfn keypti bátinn, sem þá hét Stakkavík ÁR 107, vorið 1986. Báturinn hét upphaflega Borgþór GK 100 eins og áður hefur komið fram á síðunni og var … Halda áfram að lesa Gulltoppur ÁR 321 →

Stakkavík ÁR 107

1269. Stakkavík ÁR 107 ex Sigþór ÁR 107. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Stakkavík ÁR 107 sem hér sést á siglingu til hafnar í Þorlákshöfn hét upphaflega Borgþór GK 100 og var smíðaður í Bátalóni árið 1972. Borgþór GK 100, sem var 45 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Jóhann Þórlindsson í Ytri Njarðvík en ári síðar … Halda áfram að lesa Stakkavík ÁR 107 →

Rifsnes SH 44

1136. Rifsnes SH 44 ex Örvar BA 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Rifsnes SH 44, sem á þessum myndum sést koma til hafnar á Húsavík þann 6. október 2010, var í eigu Hraðfrystihúss Hellisands. Rifsnesið var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Íslands og kom það til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1970. … Halda áfram að lesa Rifsnes SH 44 →

Indriði og Haukur

2947. Indriði Kristins BA 752 - 1269. Haukur BA 56. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það var fallegt sumarkvöldið við Tálknafjörð þegar þessar myndir sem nú birtast voru teknar. Staddur í Stóra-Laugardal þegar ég sá til Indriða Kristins á útleið og ekkert annað í stöðunni en að hlaupa niður í fjöru með stóru linsuna á og … Halda áfram að lesa Indriði og Haukur →