Feðgarnir á Bárði

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Þá er Bárður SH 81 farinn úr Skjálfandanum að sinni amk., en ég tók þessar myndir þegar hann kom til löndunar á Húsavík í gær. Ég hef legið fyrir honum og myndað eins og lesendur síðunnar hafa eflaust tekið eftir og er ég nokkuð sáttur með afraksturinn. … Halda áfram að lesa Feðgarnir á Bárði →

Landað í kvöldblíðunni

2965. Bárður SH 81 í Húsavíkurhöfn í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var logn og blíða á Húsavík í dag og það sama var upp á teningnum í kvöld þegar Bárður SH 81 var að landa afla sínum. Aftan við Bárð lá Hafborgin sem landaði síðdegis og ef minni mitt svíkur ekki eru þetta tveir … Halda áfram að lesa Landað í kvöldblíðunni →

Bárður við bryggju á Húsavík

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Enn og aftur er það Bárður SH 81 sem kemur fyrir augu þeirra er sækja síðuna heim en hér liggur hann við bryggju á Húsavík í gær. Það er ekkert að því að birta myndir af Bárði enda virkilega fallegur bátur sem smíðaður var í Danmörku og … Halda áfram að lesa Bárður við bryggju á Húsavík →

Arnar ÁR 55

1056. Arnar ÁR 55 ex Skálafell ÁR 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Arnar ÁR 55 frá Þorlákshöfn kom nokkrum sinnum til hafnar á Húsavík þegar hann stundaði rækjuveiðar árið 2012. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar í septembermánuði það ár, nánar tiltekið þann 14. september. Arnar hét upphaflega Ísleifur VE 63 og var smíðaður … Halda áfram að lesa Arnar ÁR 55 →

Emma VE 219

1664. Emma VE 219. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Emma VE 219, smíðuð í Póllandi fyrir samnefnt fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Nánar tiltekið hjá Tczew Yard í Tczew í Póllandi árið 1988. Emma var 82 brl. að stærð búin 715 hestafla Caterpillar aðalvél. Í 7. tbl. Ægis 1988 sagði m.a um Emmu: Nýtt tveggja þilfara fiskiskip bættist við fiskiskipaflotann 10. maí … Halda áfram að lesa Emma VE 219 →

Einn rauður og þrír bláir

1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Í dag komu til löndunar á Húsavík fjórir dragnótabátar sem voru að veiðum á Skjálfanda og þar af var einn rauður að lit. Heimabáturinn Haförn ÞH 26. Hinir þrír eru bláir að lit en enginn þó alveg í sama lit. Þetta voru Bárður … Halda áfram að lesa Einn rauður og þrír bláir →

Bárður SH 81

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom til löndunar á Húsavík um miðjan daginn en báturinn var að dragnótaveiðum á Skjálfandaflóa. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Smíði bátsins fór … Halda áfram að lesa Bárður SH 81 →

Það rigndi hressilega þegar Bárður kom

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það var farið að skyggja og rigndi hressilega þegar dragnótabáturinn Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom að landi á Húsavík í dag. Bárður SH 81 hefur verið við dragnótaveiðar á Eyjafirði að undanförnu en færði sig yfir í Skjálfandaflóa í dag. 2965. Bárður SH 81. Ljósmyndir Hafþór … Halda áfram að lesa Það rigndi hressilega þegar Bárður kom →

Landað úr Hafborginni

2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hafborg EA 152 kom til löndunar á Húsavík síðdegis í dag eftir að hafa verið að dragnótaveiðum á Skjálfanda. Hafborg EA 152 er 284 brútt­ót­onn að stærð, lengd hennar er 26 metr­ar og hún er átta metra breið. Hafborg er gerð út af samnefndu fyrirtæki og heimahöfnin … Halda áfram að lesa Landað úr Hafborginni →