Ísey kom að landi í dag

1458.Ísey EA 40 ex Ísey ÁR 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Þegar maður hefur úr litlu að moða vill það stundum verða þannig að sumir bátar koma oftar inn á síðuna en aðrir. Það á við Ísey EA 40 sem verið hefur við dragnótaveiðar á Skjálfandaflóa að undanförnu og töluvert verið mynduð. Þessar myndir voru … Halda áfram að lesa Ísey kom að landi í dag →

Þórir SF 77

2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Sverrir Aðalsteinsson. Sverrir Aðalsteinsson á Höfn sendi þessar myndir af togskipinu Þóri SF 77 fyrir og eftir breytingar. Þórir SF 77 og systurskipið Skinney SF 30 voru smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði. Skipin fóru síðan í gagngerar … Halda áfram að lesa Þórir SF 77 →

Magnús SH 205 kemur í land á Rifi í kvöld

1343. Magnús SH 205 ex Sigurvon BA 55. Ljósmynd Margrét Sigurðarsdóttir 2020. Dragnótabáturinn Magnús SH 205 kom að landi á Rifi í kvöld og tók tengdamamma skipstjórans, Magnúsar Darra Sigurðssonar, meðfylgjandi myndir. Svo vill til að hún er mágkona síðuhaldara. Um Magnús SH 205 hefur verið skrifað hér áður en hann er í eigu Skarðsvíkur … Halda áfram að lesa Magnús SH 205 kemur í land á Rifi í kvöld →

Bervík SH 343

936. Bervík SH 343 ex Friðrik Bergmann SH 240. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bervík SH 343, sem sést hér á mynd Tryggva Sigurðssonar, hét upphaflega Æskan SI 140 og var smíðuð 1963 hjá Raun Bybergs Skibsbyggeri as. í Odense í Danmörku fyrir Æskuna hf. á Siglufirði. Hún mældist í upphafi 82 brl. að stærð en var síðan … Halda áfram að lesa Bervík SH 343 →

Haförn kemur að landi eftir dragnótaróður

1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haförn ÞH 26 kom að landi á Húsavík síðdegis í dag en báturinn er gerður út af Ugga fiskverkun ehf. til dragnótaveiða Uggi fiskverkun ehf. keypti bátinn til Húsavíkur haustið 2010 en hann hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði. Haförn ÞH 26 hét upphaflega … Halda áfram að lesa Haförn kemur að landi eftir dragnótaróður →

Sigurður Ólafsson við bryggju á Höfn

173. Sigurður Ólafsson SF 44 ex Sigurður Sveinsson SH 36. Ljósmynd Sverrir Aðalsteinsson. Hann ber aldurinn vel hann Sigurður Ólafsson SF 44 sem hér liggur í blankalogni við bryggju á Höfn. Báturinn var smíðaður í Risör í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Runólfsson Grafarnesi, Guðmund Kristjánsson og Jón Kristjánsson í Eyrarsveit Snæfellssýslu og hét Runólfur SH 135. … Halda áfram að lesa Sigurður Ólafsson við bryggju á Höfn →

Bárður SH 81 kom til Dalvíkur

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2020. Bárður SH 81 kom til Dalvíkur nú í kvöld og tók Haukur Sigtryggur þessar myndir við það tækifæri. Bárður er á dragnót en eins og menn muna þá er hann stærsti trefjaplastbátur sem smíðaður hefur verið fyrir íslenska útgerð. Bárður SH 81 er 26,93 metra langur, breidd … Halda áfram að lesa Bárður SH 81 kom til Dalvíkur →

Ísey EA 40 kom að landi á Húsavík í gær

1458. Ísey EA 40 ex Ísey ÁR 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það er kannski komið nóg í bili af Ísey EA 40 hér á síðunni en læt þó þessar vaða en þarna var ég að mynda stjórnborðssíðuna. Báturinn hét eins og áður hefur komið hér fram upphaflega Langanes ÞH 321 frá Þórshöfn. Hannvar smíðaður … Halda áfram að lesa Ísey EA 40 kom að landi á Húsavík í gær →

Geir ÞH 150 kemur til Húsavíkur

2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Jæja þá er það Geir ÞH 150 aftur en nú er það stjórnborðssíðan á þessu aflaskipi sem fær að njóta sín. Myndirnar voru teknar þegar báturinn kom að landi á Húsavík fyrir stundu en hann var við dragnótaveiðar á Skjálfanda. Eins og áður hefur komið fram var … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150 kemur til Húsavíkur →