1223. Freyja RE 38 ex Sigurborg ak 375. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Freyja RE 38 hét upphaflega Sigurborg AK 375 og var smíðuð árið 1972 fyrir Þórð Guðjónsson útgerðarmann á Akranesi. Báturinn, sem var 103 brl. að stærð og búinn 500 hestafla Alpha aðalvél, var smíðaður hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranes. Árið 1980 fær … Halda áfram að lesa Freyja RE 38
Flokkur: Bátar
Hvanney í slipp á Akureyri
1426. Hvanney SF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvanney SF 51 frá Hornafirði er hér í slipp á Akureyri um árið og það var Frosti ÞH 220 líka. Auk þess má sjá glitta í Ársæl EA 74. Hvanney SF 51 var smíðuð hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1975 en eigandi bátsins var Borgey hf. á Höfn í … Halda áfram að lesa Hvanney í slipp á Akureyri
Særún EA 251
1527. Særún EA 251 ex Gullfaxi SH 125. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Særún EA 251 frá Árskógssandi hét upphaflega Gullfaxi SH 125 og átti heimahöfn í Grundarfirði en hér má lesa nánar um hana. Þessi mynd var tekin 1998 eða þar um bil, einhvern veginn minnir mig að það hafi verið í Eyjafjarðarálnum en kem ekki fjöllunum … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Vonin KE 2 við Jan Mayen
221. Vonin KE 2 ex Pálína SK 2. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Vonin KE 2 hét upphaflega Pálína SK 2 og var smíðuð árið 1960 fyrir Ægi hf. á Sjávarborg í Skagafirði. Báturinn var smíðaður í Hollandi og mældist í upphafi 180 brl. að stærð. Búinn 500 hestafla Kromhout aðalvél. Pálína SK 2 var seld til … Halda áfram að lesa Vonin KE 2 við Jan Mayen
Sighvatur kom að landi eftir stuttan túr
1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Línuskipið Sighvatur GK 57 kom að landi í Grindavík í blíðunni í morgun. Þetta var stuttur túr hjá honum, aðeins tvær lagnir en hann var síðast í landi sl. fimmtudag. Aflinn hjá honum var 175 kör eftir þessar tvær lagnir sem gerir tæp 60 … Halda áfram að lesa Sighvatur kom að landi eftir stuttan túr
Aldey ÞH 110 á Húsavík
1245. Aldey ÞH 110 ex Stokksey ÁR 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1992. Þessar myndir voru teknar daginn sem Aldey ÞH 110 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Húsavík en það var í nóvembermánuði árið 1992. Höfði hf. keypti bátinn til rækjuveiða og var hann gerður út til ársins 1996 en þá var Aldey var … Halda áfram að lesa Aldey ÞH 110 á Húsavík
Frosti ÞH 229
2433. Frosti ÞH 229 ex Frosti VE 144. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Frosti ÞH 229 frá Grenivík kom til löndunar í Grindavík í dag og tók Jón steinar þesssar myndir af honum þá. Aflinn rúm 170 kör og uppistaða aflans þorskur. Frosti hélt út aftur strax að löndun lokinni en hann var smíðaður í … Halda áfram að lesa Frosti ÞH 229
Sextíu ár frá því að Skálabrekkufeðgar hófu útgerð
699. Njörður ÞH 44 ex Njörður TH 44. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Í dag 1. mars eru sextíu ár síðan Olgeir Sigurgeirsson í Skálabrekku á Húsavík stofnaði til útgerðar með sonum sínum Sigurði Valdimar og Hreiðari Ófeig. Síðar kom þriðji sonurinn, Jón, inn í eigendahópinn. Þá keyptu þeir feðgar Njörð ÞH 44 af Sigurbirni Kristjánssyni ofl. … Halda áfram að lesa Sextíu ár frá því að Skálabrekkufeðgar hófu útgerð
Í vari inn á Stakksfirði
Polar Amaroq og Hákon EA 148 á Stakksfirði í dag. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar myndaði nokkur skip inni á Stakksfirðinum í dag þar þar sem þau lágu í vari fyrir veðrinu. Þarna mátti kenna Tómas Þorvaldsson GK 10, Valdimar GK 195, Hákon EA 148 og Polar Amaroq. Skip í vari á Stakksfirði … Halda áfram að lesa Í vari inn á Stakksfirði
Geir
2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það er nokkuð um liðið síðan Geir ÞH 150 hefur birst þeim sem sækja síðuna heim en nú skal bætt úr því. Þessi mynd var tekin í haust þegar Geir kom að landi á Húsavík eftir dragnótaróður á Skjálfanda. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Geir









