2407. Hákon EA 148. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Uppsjávarveiðiskipið Hákon EA 148 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í dag og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir af skipinu. Hákon EA 148 var smíðaður fyrir Gjögur hf. í Asmarskipasmíðastöðina í Talcahuano í Chile og kom til landsins 10. ágúst 2001. Hákon EA 148 er 65,95 metrar að … Halda áfram að lesa Hákon kom til Vestmannaeyja í dag
Author: Hafþór Hreiðarsson
Loireborg kom til Húsavíkur í dag
IMO 9399404. Loireborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska flutningaskipið Loireborg kom til Húsavíkur um miðjan dag í dag og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Loireborg var smíðað árið 2008 og er 4.695 GT að stærð. Lengd þess er … Halda áfram að lesa Loireborg kom til Húsavíkur í dag
Bátar í Hafnarfjarðarhöfn
Bátar í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessa fallegu vetrarmynd við Hafnarfjarðarhöfn um síðustu helgi. Hún sýnir báta við bryggju og þar fer fyrir miðri mynd Þorsteinn ÞH 115 frá Raufarhöfn. Fyrir innan hann er Jökull SK 16 og utan á honum er Gullfari HF 290. Aftan við Jökul er Drífa GK … Halda áfram að lesa Bátar í Hafnarfjarðarhöfn
Ný Cleopatra 50B til Noregs
Einar N-31-Ø. Ljósmynd Trefjar 2019. Ólafur F. Einarsson útgerðarmaður á Myre í Noregi fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50B beitningavélarbáta frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Ólafur var lengi í útgerð hér á landi ásamt föður sínum og föðurbróður, en fluttist til Noregs fyrir nokkrum árum. Nýi báturinn heitir Einar og er 15 metrar … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 50B til Noregs
Nanoq GR 1-1
IMO 9127837. Nanoq GR 1-1 ex Rubin. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Grænlenska línuskipið Nanoq GR 1-1 lætur hér úr höfn í Reykjavík vorið 2016. Nanoq GR 1-1 var smíðað í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd þess er 44 metrar og breiddin 10 metrar. Heimahöfnin er Naortalik. IMO 9127837. Nanoq GR … Halda áfram að lesa Nanoq GR 1-1
Káraborg HU 77
694. Káraborg HU 77 ex Geiri í Hlíð GK 237. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Káraborg HU 77 kemur hér að landi á Húsavík um 1990 en báturinn var á dragnótaveiðum á Skjálfanda. Eitt sinn var þessi bátur í Húsvíska flotanum og hét þá Kristján Stefán ÞH 119 og gerður út af Baldri Karlssyni. Báturinn hét upphaflega … Halda áfram að lesa Káraborg HU 77
Á Siglufirði í dag
972. Kristín GK 457 - 2158. Tjaldur SH 270 - 2262 Sóley Sigurjóns GK 200. Ljósmynd Baldursson 2019. Þorgeir Baldursson sendi síðunni þessa mynd sem hann tók í dag á Siglufirði. Hann er á Sóley Sigurjóns GK 200 þessa dagana og nýtti birtuna í dag til að senda drónann sinn á loft. Það var líf … Halda áfram að lesa Á Siglufirði í dag
Hegranes SK 2 á toginu
1492. Hegranes SK 2 ex Rockall. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Hegranes SK 2 frá Sauðárkróki er hér á toginu einhvern tímann um 1990. Hegranesið var smíðað árið 1975 í Póllandi en keyptur til Íslands frá Lorient í Frakklandi árið 1977. Það var Útgerðarfélag Skagfirðinga sem keypti togarann og kom hann til heimahafnar á Sauðárkróki 4. … Halda áfram að lesa Hegranes SK 2 á toginu
V/S Þór á Skjálfanda sumarið 2012
2769. Varðskipið Þór á Skjálfanda 21. ágúst 2012. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Varðskipið Þór kom í fyrsta skipti til Húsavíkur þann 21. ágúst árið 2012 og voru þessar myndir teknar á Skjálfanda þann dag. Varðskipið Þór, sem er flaggskip Landhelgisgæslunnar, var smíðað í ASMAR skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile og kom það til heimahafnar í Reykjavík … Halda áfram að lesa V/S Þór á Skjálfanda sumarið 2012
Náttfari ljósum prýddur
993. Náttfari ex Byrefjell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þeim fjölgar bátunum í Húsavíkurhöfn sem prýðast jólaljósum og í dag kom serían upp á Náttfara. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4. Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling … Halda áfram að lesa Náttfari ljósum prýddur









