
Dragnótabáturinn Stapafell SH 26 kemur hér til hafnar á Rifi en það er Stapafell ehf. sem gerir hann út og er hann með heimahöfn á Arnarstapa.
Um bátinn, sem lengi hét Þorleifur EA 88, er það m.a að segja að hann hét upphaflega Hildur Stefánsdóttir ÞH 204 og var smíðaður á Seyðisfirði árið 1975.
Önnur nöfn sem báturinn hefur borið eru Tryggvi Jónsson EA 26, Kristín ÁR 101, Ásdís ST 37, Hringur GK 18 og Leifur EA 888.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution