1890. Katrín GK 266 ex Una GK 266. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Hér er Katrín GK 266 á landleið til Grindavíkur í gærdag. Afli dagsins var sagður 3 tonn eftir því sem Jón Steinar Sæmundsson segir á síðu sinni. Búið að lengja bátinn (1997), og stytta aftur (2006), ásamt því að byggja yfir frá því hann … Halda áfram að lesa Katrín GK 266
Author: Hafþór Hreiðarsson
Heimaey að kasta nótinni
2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Álsey VE 2 tók þessar myndir fyrir 40 mínútum og sýna þær Heimaey VE 1 kasta nótinni. Skipin voru þá á loðnumiðnum út af Snæfellsnesi ásamt Hoffelli SU 80. 2812. Heimaey VE 1. Ljósmyndir Hólmgeir Austfjörð 2021. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Heimaey að kasta nótinni
Frosti ÞH 229
2433. Frosti ÞH 229 ex Frosti VE 144. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Frosti ÞH 229 frá Grenivík kom til löndunar í Grindavík í dag og tók Jón steinar þesssar myndir af honum þá. Aflinn rúm 170 kör og uppistaða aflans þorskur. Frosti hélt út aftur strax að löndun lokinni en hann var smíðaður í … Halda áfram að lesa Frosti ÞH 229
Bjarni Ólafsson AK 70
2909. Bjarni Ólafsson AK 70 ex Fiskeskjer. Ljósmynd Hilmar Örn Kárason 2021. Hilmar Örn Kárason skipverji á Venusi NS 150 tók þessa mynd á loðnumiðunum í morgun en hún sýnir Bjarna Ólafssyni AK 70 með nótina á síðunni. 600 tonna kast hélt Hilmar. Runólfur Hallfreðsson ehf. keypti skipið til landsins árið 2015 en það var … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70
Stakfell frá Þórshöfn
1609. Stakfell ÞH 360. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þórshafnartogarinn Stakfell ÞH 360 er hér við bryggju á Húsavík en komur þess til Húsavíkur voru ekki tíðar ef ég man rétt. Stakfellið er 50,75 metrar að lengd og 10,30 metrar að breidd og mældist 471 brl. að stærð. í því var, og er kannski enn, 2200 hestafla … Halda áfram að lesa Stakfell frá Þórshöfn
Gunni RE 51
1319. Gunni RE 51 ex Nunni GK 161. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gunni RE 51 hét upphaflega Stefán Rögnvaldsson EA 345 og var smíðaður í Bátalóni árið 1973. Heimahöfn hans Dalvík. Báturinn var 11 brl. að stærð og búinn 120 hestafla Power Marinevél. Heimahöfn hans var Dalvík þaðan sem hann var seldur út í Grímsey árið … Halda áfram að lesa Gunni RE 51
Suðurey VE 12
130. Suðurey VE 12 ex Júpíter ÞH 61. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Suðurey VE 12 hét upphaflega Gerpir NK 106 og var smíðaður í Þýskalandi fyrir 1960 fyrir Bæjarútgerð Neskaupsstaðar. Gerpir NK 106 var seldur Júpíter h/f í Reykjavík árið 1960 og fékk þá nafnið Júpíter RE 161. Hrólfur Gunnarsson skipstjóri keypti Júpíter 1978 og ári … Halda áfram að lesa Suðurey VE 12
Roaldsen við bryggju í Egersund
IMO 9223291. Roaldsen R-80-ES. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson 2021. Baldur Sigurgeirsson vélstjóri myndaði Roaldsen R-80-SE í morgun en þetta glæsilega skip lá við bryggju í heimahöfn sinni Egersund. Roaldsen var smíðað árið 1999 og er 1185 GT að stærð. Lengd skipsins er 59 metrar og breiddin 11. Aðalvélin er 3261 hestafla MAK. Eigandi er Roaldsen Kornelius … Halda áfram að lesa Roaldsen við bryggju í Egersund
Sextíu ár frá því að Skálabrekkufeðgar hófu útgerð
699. Njörður ÞH 44 ex Njörður TH 44. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Í dag 1. mars eru sextíu ár síðan Olgeir Sigurgeirsson í Skálabrekku á Húsavík stofnaði til útgerðar með sonum sínum Sigurði Valdimar og Hreiðari Ófeig. Síðar kom þriðji sonurinn, Jón, inn í eigendahópinn. Þá keyptu þeir feðgar Njörð ÞH 44 af Sigurbirni Kristjánssyni ofl. … Halda áfram að lesa Sextíu ár frá því að Skálabrekkufeðgar hófu útgerð
Í vari inn á Stakksfirði
Polar Amaroq og Hákon EA 148 á Stakksfirði í dag. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar myndaði nokkur skip inni á Stakksfirðinum í dag þar þar sem þau lágu í vari fyrir veðrinu. Þarna mátti kenna Tómas Þorvaldsson GK 10, Valdimar GK 195, Hákon EA 148 og Polar Amaroq. Skip í vari á Stakksfirði … Halda áfram að lesa Í vari inn á Stakksfirði









