1245. Aldey ÞH 110 ex Stokksey ÁR 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1992. Þessar myndir voru teknar daginn sem Aldey ÞH 110 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Húsavík en það var í nóvembermánuði árið 1992. Höfði hf. keypti bátinn til rækjuveiða og var hann gerður út til ársins 1996 en þá var Aldey var … Halda áfram að lesa Aldey ÞH 110 á Húsavík
Author: Hafþór Hreiðarsson
Agla ÁR 79
2879. Agla ÁR 79. Ljósmynd Vigfús Markússon. Agla ÁR 79 er af gerðinni Gáski 1180 og var smíðuð hjá Mótun ehf. á Sauðárkróki árið 2016 og sjósettur 3. mars það ár. Eigandi AAH ehf. í Reykjavík sem hefur gert bátinn út til handfæraveiða. Heimahöfn bátsins er Þorlákshöfn. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Agla ÁR 79
Jón Finnsson RE 506
1283. Jón Finnsson GK 506 ex Havbas. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Jón Finnsson GK 506 er hér með nótina á síðunni en myndina tók Jón Páll Ásgeirsson fyrir margt löngu síðan á loðnumiðunum. Jón Finnsson GK 506 var í eigu Gauksstaða h/f í Garði og var keyptur frá Noregi árið 1972. Hann var smíðaður í … Halda áfram að lesa Jón Finnsson RE 506
Rögnvaldur Jónsson ÞH 107
1071. Rögnvaldur Jónsson ÞH 107. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rögnvaldur Jónsson ÞH 107 var smíðaður árið 1961 í Bátalóni í Hafnarfirði, hann var 8 brl. að stærð og með heimahöfn á Raufarhöfn alla tíð. Báturinn var dekkaður árið 1968 en hann var smíðaður fyrir Jón, Eirík og Þorberg Guðmundssyni á Raufarhöfn. Rögnvaldur Jónsson ÞH 107 var … Halda áfram að lesa Rögnvaldur Jónsson ÞH 107
Tukuma Arctica
IMO: 9822865. Tukuma Arctica í Sundahöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Magnús Jónsson tók þessar myndir í gærmorgun þegar Tukuma Arctica, gámaflutningaskip grænlenska skipafélagsins Royal Arctic Line, kom að bryggju í Sundahöfn . Tukuma Arctica var smíðað í Kína og er samskonar skip og Dettifoss og Brúarfoss sem Eimskip lét smíða þar. Skipið er 179 metra langt, … Halda áfram að lesa Tukuma Arctica
Faxaborg GK 40
1314. Faxaborg RE 40 ex Moflag Junior. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Hér kemur einn gullmolinn til úr safni Jóns Páls Ásgeirssonar en myndin sýnir Faxaborgina GK 40 koma til hafnar í Hafnarfirði (held ég) drekkhlaðin loðnu. Faxaborg GK 40 var keypt til landsins frá Noregi árið 1973 en þetta 459 brl. skip, sem áður hét … Halda áfram að lesa Faxaborg GK 40
Sandfell SU 75
2841. Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Línubáturinn Sandfell SU 75 er hér á landleið til Grindavíkur en Jón Steinar tók þessar myndir af bátnum sl. laugardag. Aflinn tæp 15 tonn samkvæmt vef Fiskistofu. Sandfell er í eigu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði og hét áður Óli á Stað GK 99. … Halda áfram að lesa Sandfell SU 75
Hafrún ÍS 400
1050. Hafrún ÍS 400 ex Eldborg GK 13. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Hafrún ÍS 400 hét upphaflega Eldborg GK 13 og var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1967, fyrsta tveggja þilfara skipið sem smíðað var fyrir Íslendinga. Eldborg GK 13, sem var 415 brl. að stærð, var smíðuð fyrir Gunnar Hermannsson og Þórð Helgason … Halda áfram að lesa Hafrún ÍS 400
Hoffell að veiðum
2885. Hoffell SU 80 ex Smaragd. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hoffell SU 80 er hér að loðnuveiðum út af Snæfellsnesi í dag en myndirnar tók Hólmgeir Austfjörð um borð í Álsey VE 2. 2885. Hoffell SU 80 ex Smaragd. Ljósmyndir Hólmgeir Austfjörð 2021. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í … Halda áfram að lesa Hoffell að veiðum
Ljósafellið með fullfermi til Þorlákshafnar
1277. Ljósafell SU 70. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Togarinn Ljósafell SU 70 frá Fáskrúðsfirði kom til hafnar í Þorlákshöfn í dag með fullfermi sem gerir rúm 330 kör. Uppstaða aflans var ufsi sem fékkst á svokölluðum Heimsmeistarahrygg og þar í kring á um það bil fjórum dögum. Jón Steinar tók þessar myndir en Ljósafell SU … Halda áfram að lesa Ljósafellið með fullfermi til Þorlákshafnar









