Líflegt við höfnina

Bátar mætast í höfninni á Húsavík í gær. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það var líflegt við höfnina á Húsavík í gær er strandveiðibátar komu úr róðri og hvalaskoðunarbátar komu og fóru. Hér mætast Laxinn ÞH 177 sem var að koma úr róðri og Amma Helga að leggja upp í siglingu með ferðamenn. Með því að … Halda áfram að lesa Líflegt við höfnina

Olía tekin fyrir næsta róður

Smábátar taka olíu fyrir næsta róður. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021 Á þessari mynd má sjá tvo strandveiðibáta taka olíu á Húsavík í dag og í bakgrunni eru hvalaskoðunarbátar ásamt skonnortum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher … Halda áfram að lesa Olía tekin fyrir næsta róður

Jóhannes Ívar KE 85

963. Jóhannes Ívar KE 85 ex Jónína ÍS 93. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jóhannes Ívar KE 85 hét upphaflega Ágúst Guðmundsson II GK 94 og var smíðaður í Danmörku árið 1963. Hann var 82 brl. að stærð en endurmældur síðar og mældist þá 75 brúttórúmlestir. Eigendur voru Magnús, Ragnar og Guðmundur Ágústssynir en í lok árs … Halda áfram að lesa Jóhannes Ívar KE 85

Wilson North kom í morgun

IMO 9430947. Wilson North. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson North kom til hafnar á Húsavík á níunda tímanum í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem er 123 metrar á lengd og 16 metra breitt, kom með trjáboli til PCC á Bakka. Það mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 … Halda áfram að lesa Wilson North kom í morgun

Nivenskoyen landaði í Hafnarfirði

IMO 8843018. Nivenskoye K 1966. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Rússneski togarinn Nivenskoyen kom til Hafnarfjarðar í fyrradag með um 1500 tonna afla sem skipað var yfir í flutningaskip. Togarinn, sem var smíðaður árið 1991, er 104 metrar að lengd, 16 metra breiður og mælist 4,407 GT að stærð. Heimahöfn Nivenskoye er Kalinigrad sem er rússnesk borg … Halda áfram að lesa Nivenskoyen landaði í Hafnarfirði

Wilson Saga kom til Húsavíkur í morgun

IMO 8918461. Wilson Saga ex Borealnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Saga kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum þar sen nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi fyrir kísliver PCC á Bakka. Wilson Saga var smíðað árið 1998 og siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limasol. Skipið er 113 metra … Halda áfram að lesa Wilson Saga kom til Húsavíkur í morgun