2790. Áki í Brekku SU 760 ex Einar Hálfdáns ÍS 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Áki á Brekku SU 760 kemur hér til hafnar á Húsavík í vikunni en báturinn er á handfærum. Áður Einar Hálfdáns ÍS 11 en báturinn er í eigu Gullrúnar ehf. á Breiðdalsvík en fyrirtækið hafði bátaskipti við Vébjarnarnúp ehf. í … Halda áfram að lesa Áki í Brekku
Author: Hafþór Hreiðarsson
Crystal Endeavor á Skjálfanda
IMO 9821873. Crystal Endeavor á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Skemmtiferðaskipið Crystal Endeavor, sem er í jómfrúarferð sinni við Íslandsstrendur, kom til Húsavíkur í dag og lét aftur úr höfn eftir kvöldmat. Á myndinni er skipið að skríða af stað og hafnsögubáturinn Sleipnir að snúa til hafnar. Skipið sem er sex stjörnu lúxussnekkja upp frá Reykjavík … Halda áfram að lesa Crystal Endeavor á Skjálfanda
Garðar
260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norðursiglingarbáturinn Garðar kemur hér úr hvalaskoðunarferð eftir hádegi í dag en renniblíða var á Skjálfandaflóa. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Garðar
Breytingar á skipastól Síldarvinnslunnar
2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2021. Bergur ehf. í Vestmannaeyjum hefur samþykkt sölu á Berg VE 44 til Vísis í Grindavík. Skipið verður afhent nýjum eigendum í ágúst á þessu ári. Í tilkynningu á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að Bergur er með tæplega 1600 þorskígildi, en skipið er selt án aflaheimilda. … Halda áfram að lesa Breytingar á skipastól Síldarvinnslunnar
Tímamót í lífi manns
Gísli V. Jónsson á brúarvængnum á Páli Jónssyni GK.Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Í gær sigldi Gísli V. Jónsson skipi sínu, Páli Jónssyni GK 7, í síðasta sinn til hafnar í heimahöfn í Grindavík. Jón Steinar var með myndavélina á lofti og tók meðfylgjandi myndir af Páli Jónssyni GK 7 sem og kallinum en á … Halda áfram að lesa Tímamót í lífi manns
Ronja Tind á Húsavík
IMO 9743801. Ronja Tind ex Oytind.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Brunnskipið Ronja Tind er á Húsavík í dag að taka seiði frá Rifósi og flytja austur á firði. Donnalaks var hér sömu erinda um helgina. Ronja Tind var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2015 og hét upphaflega Oytind. Ronja Tind er 70 metra langt … Halda áfram að lesa Ronja Tind á Húsavík
Hathor kom með drumba
IMO 9373280. Hathor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Hathor kom til Húsavíkur um helgina og lagðist að Bökugarðinun þar skipað var upp trédrumbum fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2007 og siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Midwolda. Þða er 89 metra langt, 13 metra breitt og mælist 2,545 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Hathor kom með drumba
Uppskipun úr Hathor
https://videopress.com/v/jkvuapfg?preloadContent=metadata IMO 9373280. Hathor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Hathor kom til Húsavíkur í dag með trédrumba fyrir kísilver PCC á Bakka. Uppskipun hófst með það sama og var í fullum gangi þegar ég leit við á Bökugarðinum síðdegis í dag.
Garðar og Náttfari
260. Garðar (fjær) og 993. Náttfari. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbátarnir Garðar og Náttfari mætast hér í hafnarmynninu á Húsavík en myndn var tekin í dag. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Garðar og Náttfari
Einar Hálfdáns – Áki í Brekku
2790. Einar Hálfdáns ÍS 11 nú Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Einar Hálfdáns ÍS 11 sem nú heitir samkvæmt skipaskrá Áki í Brekku SU 760 landaði á Húsavík í morgun en báturinn er á handfærum. Hann er í eigu Gullrúnar ehf. á Breiðdalsvík en fyrirtækið hafði bátaskipti við Vébjarnarnúp ehf. í … Halda áfram að lesa Einar Hálfdáns – Áki í Brekku








